Catégorie: Fréttir
1. júlí, 2014
Fréttir
Vakin er athygli á að samkvæmt kjarasamningi FBM og SA , undirrituðum 21. desember 2013 og kjarasamningi FGT-deildar og FA undirrituðum 13. mars 2014 hækka framlög til Prenttæknisjóðs um 0.1% frá 1. Júní 2014. Framlag atvinnurekanda verður þá 1,1%. Sjá nánar í kjarasamningum hér
30. maí, 2014
Fréttir
Reykjavík 28. maí 2014 Aðildarfélög ASÍ gerðu kjarasamning við Samtök atvinnulífsins um síðustu áramót sem ætlað var að stuðla að stöðugleika í gengi og verðlagi. Samningsaðilar litu á samninginn sem tilraun sem byggði á því að breið samstaða næðist í samfélaginu um þá sýn að leggja áherslu á stöðugleika […]
14. maí, 2014
Fréttir
Nú er verið að byggja nýtt orlofshús FBM í Miðdal. Húsið rís fyrir neðan orlofshús nr. 1. (raðhúsið). Húsið verður búið öllum helstu þægindum, s.s. heitum potti og gufubaði og verður tilbúið til útleigu á komandi hausti. Sjá teikningar af húsinu hér
Fréttir
Í viðauka við samning FBM og SA frá 21. desember 2013, sem undirritaður var milli FBM og Samtaka atvinnulífsins 14. mars s.l., var orlofsuppbót hækkuð úr kr. 29.500 í 39.500 og desemberuppbót hækkuð úr kr. 53.600 í kr. 73.600 vegna ársins 2014. Samhliða þessum breytingum var samningstími lengdur til 28. febrúar 2015, en hann gilti […]
6. maí, 2014
Fréttir
Opnað hefur verið fyrir leigu á orlofsvef félagsins á þeim húsum sem var skilað inn eftir úthlutun. Þá gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Sjá orlofsvef félagsins hér Sumarúthlutun orlofshúsa fyrir sumarið 2014 fór fram 16. apríl. Alls bárust 114 umsóknir, 66 félagsmenn fengu úthlutað orlofshúsi eða orlofsíbúð. 48 fengu ekki ósk sína uppfyllta. Langmest var […]
5. maí, 2014
Fréttir
LOFTLAGSBREYTINGAR OG ALMANNAHAGUR Miðvikudaginn 14. maí kl. 08:00-10:15 á Grand Hótel Reykjavík Eitt af mikilvægustu málefnum dagsins í dag eru loftlagsbreytingar af mannavöldum og neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir komandi kynslóðir. Umhverfisbreytingar hafa víðtæk áhrif á efnahags- og atvinnulíf framtíðarinnar og lífskjör almennings. Alþjóðlegur samtakamáttur er eina leiðin til að vinna gegn þessari þróun og þar […]
Fréttir
Laugardaginn 17. maí verður árlegur vinnu- og hreinsunardagur í Miðdal. Verkefni vinnudagsins eru margvísleg t.d. klipping trjáa og runna á svæðinu og við göngustíga merking gönguleiða Takið með ykkur klippur, stórar sem smáar, sagir til að saga tré,skóflur og önnur verkfæri sem þið teljið að komi að gagni. Mæting kl. 11.00 við tjaldmiðstöðina […]
Fréttir
Margir lögðu leið sína í miðborg Reykjavíkur á 1. maí til að taka þátt í kröfugöngu verkalýðsfélaga eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 1. maí ávarp fulltrúaráðs stéttarfélaganna í Reykjavík Samfélag fyrir alla Það eru áleitnar spurningar sem hljóta að leita á huga Íslendinga þessa dagana. Almenningi hefur verið lofað ein af stærstu gjöfum […]
2. maí, 2014
Fréttir
Um miðjan maí flytur IÐAN fræðslusetur í nýtt húsnæði að Vatnagörðum 20 í Reykjavík Stefnt er að því að flytja föstudaginn 16. maí nk. og verða skrifstofur IÐUNNAR lokaðar þann dag. Opnað verður aftur stundvíslega kl. 9:00 mánudaginn 19. maí í Vatnagörðum 20.
22. apríl, 2014
Fréttir
Dagskrá 1. maí í Reykjavík má finna hér Félag bókagerðarmanna býður félagsmönnum sínum til kaffisamsætis í húsnæði félagsins á Stórhöfða 31, 1. hæð (gengið inn Grafarvogsmegin), eftir baráttufundinn.