Fréttir

Ályktun miðstjórnar ASÍ um kjaramál

30 maí. 2014

 

asilogo

 

 

 

 

 

Reykjavík 28. maí 2014

Aðildarfélög ASÍ gerðu kjarasamning við Samtök atvinnulífsins um síðustu áramót sem ætlað var að stuðla að stöðugleika í gengi og verðlagi. Samningsaðilar litu á samninginn sem tilraun sem byggði á því að breið samstaða næðist í samfélaginu um þá sýn að leggja áherslu á stöðugleika og hóflegar kauphækkanir. Samið var um 2,8% almennar launahækkanir auk sérstakra hækkana á lægstu laun.

Nú er ljóst að tilraunin hefur mistekist. Stórir hópar sem sömdu í kjölfarið hafa samið um allt annað og meira en talið var að væri til skiptana í kringum áramótin. Má þar nefna grunn- og framhaldsskólakennara sem sömdu við ríki og sveitarfélög um tæplega 30% hækkanir til þriggja ára, flugmenn sem meta nýgerðan skammtímasamning sinn við Icelandair á 8% á ársgrundvelli og háskólamenn hjá sveitarfélögum.

Miðstjórn ASÍ telur einsýnt að verkefnið í þeim samningum sem eftir á að gera á þessu ári s.s. ASÍ félaga við sveitarfélög taki mið af nýgerðum samningum við kennara, flugmenn ofl. Þá er ljóst að í þeim kjarasamningum sem losna upp úr næstu áramótum verður áherslan á að leiðrétta hlut þeirra sem setið hafa eftir í launabreytingum á þessu ári.

Til baka

Póstlisti