Prentarinn

Grafía gefur út blaðið Prentarann sem birtir greinar er varða framfarir og nýjungar á starfssviði félagsins og félagsleg málefni, svo og tilkynningar til félagsmanna ásamt skýrslum og reikningum félagsins svo sem við á.

Blaðinu skal ritstýrt í samræmi við ákvörðun aðalfundar og skal ábyrgðarmaður, sem jafnframt er ritstjóri, kosinn sérstaklega.

Ritnefnd Prentarans:
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jakob Viðar Guðmundsson. Ritstjórn: Anna S. Helgadóttir, Ingi Rafn Ólafsson, Kristín Helgadóttir. 

Ábendingar og óskir lesenda um efni í blaðið eru vel þegnar.

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Félag bókagerðarmanna hafa gert með sér samning um að gera útgefið efni Félags bókagerðarmanna skv. neðangreindri upptalningu aðgengilegt á timarit.is.

Samningur þessi miðar að því að vinna stafrænar myndir af öllum útgefnum
heftum tímaritanna:

  1. Bókbindarinn 1956–1975,
  2. Fréttabréf félags bókagerðanema 1977,
  3. Kveldstjarnan 1886 [handskrifað og birt á handrit.is],
  4. Prentarinn 1887–1889 [handskrifað og birt á handrit.is],
  5. Prentarinn : blað Hins íslenzka prentarafélags 1910–2012,
  6. Prentneminn 1927–1929,
  7. Prentneminn : málgagn Prentnemafélagsins 1941–2004,

Öll framtíðar eintök af Prentaranum og fréttabréfi FBM verða einnig vistuð á safninu. Jafnframt tekur Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn að sér að miðla endurgjaldslaust til almennings þeim gögnum er til verða á grundvelli samningsins.

Póstlisti