Catégorie: Fréttir
23. september, 2013
Fréttir
Vakin er athygli á nýrri heimasíðu Félagsmálaskólans www.felagsmalaskoli.is Síðan hefur verið endurbætt og gerð aðgengilegri. Á síðunni er að finna upplýsingar um námsframboð Félagsmálaskólans ásamt öðru efni. Einnig er að finna þar athyglisverðar greinar og áhugaverða tengla, myndir og myndbönd, að ógleymdu góðu efni um einelti. Félagsmálaskólinn er einnig á Facebook og hvetjum við félagsmenn til […]
19. september, 2013
Fréttir
IÐAN fræðslusetur efnir til viku símenntunar í iðnaði á Norðurlandi 7. – 12. október. Í boði verður fjöldi námskeiða, kynning á iðn- og verknámi auk þess sem starfsmenn IÐUNNAR munu heimsækja vinnustaði. Við hvetjum félagsmenn FBM á Norðurlandi til að kynna sér þau námskeið sem verða í boði. Sjá nánar á vef IÐUNNAR www.idan.is/norudurland
18. september, 2013
Fréttir
Félagsmenn geta nú keypt á orlofsvef félagsins gistimiða á Icelandair hótelum Akureyri, Héraði, Klaustri, Flúðum, Hamri, í Keflavík og Reykjavík Natura. Verðið á miðanum er 12.100 kr. Fullt verð er 17.900 – 19.500 kr. Hver miði gildir fyrir tvo í gistingu, eina nótt í tveggja manna standard herbergi, Morgunverður er ekki innifalinn. Sjá miðann hér […]
17. september, 2013
Fréttir
16. september var boðað til afhendingar viðurkenninga fyrir þátttöku í heimsleikum iðn- og verkgreina World skills sem haldnir voru í Leipsig í Þýskalandi í júlí 2013. Keppendur voru um 1000 frá 52 þjóðum og komu um 200.000 áhorfendur á leikana. Íslendingar sendu fjóra keppendur í pípulögnum, rafvirkjun, hársnyrtiiðn og grafískri miðlun. Keppandi í grafískri miðlun var […]
3. september, 2013
Fréttir
Vegna útfarar Skúla Skúlasonar fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóra Stafa lífeyrissjóðs, verða skrifstofur að Stórhöfða 31 lokaðar á morgun miðvikudag frá kl. 12.00 á hádegi. Félag bókagerðarmanna
14. ágúst, 2013
Fréttir
MIÐDALSMÓTIÐ – 2013 Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 10. ágúst í ágætis veðri. Þetta var í átjánda sinn sem mótið er haldið í Miðdal. 28 þátttakendur mættu til leiks. Keppt var skv. punktakerfi með forgjöf í karla- og kvennaflokki. Einnig var keppt í höggleik án forgjafar um Postillonbikarinn. […]
8. ágúst, 2013
Fréttir
Borgarholtsskóli býður upp á metnaðarfullt dreifnám í margmiðlun sem er sérsniðið að þörfum þeirra sem eru í vinnu eða öðru námi. Námið nýtist öllum sem vilja ná tökum á upplýsingatækninni til marksækinnar miðlunar. Ekki síst er námið gagnlegt kennurum, fjölmiðlafólki, myndlistarmönnum, kynningarfulltrúum, starfsmönnum upplýsingamiðstöðva á borð við bókasöfn og þeim sem vinna við upplýsingamiðlun á […]
1. ágúst, 2013
Fréttir
Nýr leik kastali hefur verið reistur á tjaldsvæðinu í Miðdal, sem mun leysa eldri kastala af hólmi. Mjög góð þátttaka var á fjölskylduhátíð FBM og Miðdalsfélagsins laugardaginn 3. ágúst s.l.. í Miðdal. Keppt var í körfuboltakeppni, handboltakeppni og Minigolfi. Einnig var í boði ýmis afþreying fyrir yngri kynslóðina s.s. hoppukastali og hoppudýna, andlitsmálning og blöðrur. […]
29. júlí, 2013
Fréttir
Í tilefni Menningarnætur stendur Arion banki fyrir listsýningu á um 500 götuskiltum (strætóskýlum) á höfuðborgarsvæðinu dagana 20.–27. ágúst. Sýningin ber nafnið Götusýningin 2013 og verður einhver stærsta listsýning sem haldin hefur verið á landinu. Tilgangur sýningarinnar er að vekja athygli á og fagna þeirri grósku og sköpunarkrafti sem einkennir íslenskt listalíf og samfélagið allt. Það […]
4. júlí, 2013
Fréttir
Nýir samstarfsaðillar hafa bæst í hóp þeirra sem veita félagsmönnum FBM afslætti í gegnum afsláttarkerfi Frímanns t.d. Arctic adventures,Bílaleiga Akureyrar, Hertz, Heimilistæki, Olís, Poolstofan Lágmúla o.fl. Félagsmenn FBM þurfa að framvísa félagsskírteini til að nýta afsláttinn. Sjá lista yfir fyrirtæki sem veita afslátt hér Fyrirtæki sem veita afslætti eiga að vera með afsláttarmerki Frímanns sýnilegt.