Fréttir

Hilmar Þorkelsson Meistari FBM í golfi 2013

14 ágú. 2013

 

MIÐDALSMÓTIÐ – 2013 

Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 10. ágúst í ágætis veðri.

Þetta var í átjánda sinn sem mótið er haldið í Miðdal. 28 þátttakendur mættu til leiks.

Keppt var skv. punktakerfi með forgjöf í karla- og kvennaflokki. Einnig var keppt í  höggleik án forgjafar um Postillonbikarinn. Eftir kaffiveitingar var keppendum raðað á teiga og hófst mótið kl. 11.00 undir stjórn Braga Dórs Hafþórssonar dómara og Oddgeirs Þórs Gunnarssonar. Allir þátttakendur fengu afhenta teiggjöf sem var golfboltar og tí frá Hvítlist og Buff frá FBM.

Hvítlist var aðalstuðningsaðili mótsins sem og undanfarin ár en Fontana, gufubaðið á Laugarvatni gaf einnig verðlaun. Færum við stuðningsaðilum bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Fyrstu verðlaun í punktakeppni með forgjöf hlaut Hilmar Þorkelsson Meistari FBM  með 39 punkta, í öðru sæti varð Vilberg Sigtryggsson með 31 punkt og í þriðja sæti varð Páll Þórir Ólafsson með 29 punkta. Skv. reglum mótsins geta aðeins félagsmenn FBM hlotið verðlaun í punktakeppninni en gestir geta unnið önnur verðlaun.

Postillon  bikarinn, fyrstu verðlaun án forgjafar vann Baldur Ingi Jónasson á 86 höggum, í öðru sæti varð Róbert Björnsson á 88 höggum og í þriðja sæti varð Eiður Rafn Gunnarsson á 89 höggum.

Aðeins ein kona keppti í mótinu Valgerður Þórisdóttir sem hlaut 1. verðlaun í kvennaflokki.

Púttmeistari varð Vilberg Sigtryggson með 27 pútt.

Lengsta teighögg karla á 3./12. braut átti Róbert Björnsson.

Lengsta teighögg kvenna á 3./12. braut átti Valgerður Þórisdóttir.

Næst holu á 5./14. braut var Óskar R. Jakobsson, 4,14 m.

Næst holu á 8./17. braut var Óskar R. Jakobsson, 2,38 m.

Auk þess var dregið úr skorkortum. Í mótslok, var boðið var upp á léttar veitingar sem þátttakendur nutu eftir frábæran og skemmtilegan keppnisdag.

Til baka

Póstlisti