Catégorie: Fréttir

Kjarasamningur Grafíu og SÍA/FA samþykktur með 85% atkvæða

30. júlí, 2015

Fréttir

Kosningu um kjarasamning Grafíu/FBM og Samtaka íslenskra auglýsingastofa/FA lauk kl. 12 fimmtudaginn 30. júlí. Á kjörskrá voru 71, 20 kusu eða 28.2%. Já sögðu 17 eða 85%, nei sögðu 2 eða 10% og 1 tók ekki afstöðu eða 5%. Samningurinn telst því samþykktur.

Fjölskylduhátíð Grafíu 1. ágúst 2015

Fréttir

Árleg fjölskylduhátíð Grafíu og Miðdalsfélagsins verður haldin á orlofssvæði félagsins í Miðdal laugardaginn 1.ágúst. Sjá nánari dagskrá hér * Félagsmenn þurfa að framvísa skilríki og/eða félagsskírteini við komu.* Hver félagsmaður má hafa gesti með sér á tjaldsvæðinu, þrjár einingar fyrir utan sína eigin, samtals 4 einingar með einingu félagsmanns (húsbílar, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagn eða tjöld […]

Golfmót Grafíu – 20 ára afmælismót Lokadagur skráningar er 6. ágúst

29. júlí, 2015

Fréttir

Árlegt golfmót Grafíu Miðdalsmótið verður haldið laugardaginn 8. ágúst n.k. á golfvelli Dalbúa í Miðdal. Skráning fer fram á skrifstofu Grafíu í síma 552 8755,  netfang, hronn@fbm.is, einnig er hægt að skrá sig á golf.is sjá nánari dagskrá hér

Kjarasamningur Grafíu/FBM og SA samþykktur með 76,2% atkvæða

15. júlí, 2015

Fréttir

Kosningu um kjarasamning Grafíu/FBM og Samtaka atvinnulífsins lauk kl. 12 í dag 15. júlí. Á kjörskrá voru 609, 353 kusu eða 56%. Já sögðu 260 eða 76,2%, nei sögðu 74 eða 21,7% og 7 tóku ekki afstöðu eða 2,1%. Skv. niðurstöðunni var kjarasamningurinn samþykktur.    

Félagsfundur FGT deildar

9. júlí, 2015

Fréttir

Boðað er til félagsfundar á Stórhöfða 31, 1. hæð (gengið inn Grafarvogsmeginn)  þriðjudaginn 14. júlí kl. 16.30 Dagskrá 1.       Kynning á nýgerðum kjarasamningi Grafíu – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum og Sambands íslenskra auglýsingastofa/Félags atvinnurekenda vegna grafískra hönnuða. 2.       Kynning á rafrænni atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn 3.       Önnur mál Grafískir hönnuðir eru hvattir til að mæta á fundinn og […]

Kjarasamningar Grafíu og SÍA/FA undirritaðir

8. júlí, 2015

Fréttir

Kjarasamningur Grafíu og Samtaka íslenskra auglýsingastofa/Félags atvinnurekenda vegna grafískra hönnuða/teiknara voru undirritaðir 8. júlí. Samningurinn er á sambærilegum nótum og kjarasamningur Grafíu og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaður var fyrir skömmu síðan. Gildistími er frá 1. maí s.l. og gildir til 31. desember 2018. Kjarasamningurinn verður sendur til félagsmanna ásamt kynningu og leiðbeiningum um rafræna kosningu […]

Hlaupið heim til styrktar langveikum börnum

4. júlí, 2015

Fréttir

Óskar R. Jakobsson, prentari, starfsmaður í Pixel og stjórnarmaður í Grafíu og félagi hans Gísli Einar Árnason ætla að hlaupa dagana 3. – 11. júlí frá Reykjavík til Akureyrar yfir hálendið, þeir hlaupa um 40-50 km á dag. Þetta gera þeir til að vekja athygli á stöðu langveikra barna og safna peningum til styrktar þeim. […]

Félagsfundur í Reykjavík þriðjudaginn 30. júní kl. 16.30

24. júní, 2015

Fréttir

Boðað er til félagsfundar á Stórhöfða 31, 1. hæð (gengið inn Grafarvogsmeginn)  þriðjudaginn 30. júní kl. 16.30 Dagskrá 1. Kynning á kjarasamningi Grafíu/FBM við Samtök atvinnulífsins 2. Atkvæðagreiðasla um kjarasamninginn- kynning á rafrænni atkvæðagreiðslu 3. Önnur mál Félagsmenn eru hvattir til að mæta Reykjavík 24. júní 2015 Stjórn Grafíu/FBM stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum

Félagsfundur á Akureyri föstudaginn 26. júní kl. 12

Fréttir

Boðað er til félagsfundar á Akureyri föstudaginn 26. júní kl. 12 Dagskrá 1. Kynning á kjarasamningi Grafíu/FBM við Samtök atvinnulífsins 2. Atkvæðagreiðasla um kjarasamninginn- kynning á rafrænni atkvæðagreiðslu 3. Önnur mál Félagsmenn eru hvattir til að mæta Reykjavík 24. júní 2015 Stjórn Grafíu/FBM stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum

Kjarasamningar við SA undirritaðir

23. júní, 2015

Fréttir

Kjarasamningar Grafíu við Samtök atvinnulífsins voru undirritaðir undir kvöld mánudaginn 22. júní og þar með er verkfalli afstýrt. Samningurinn verður kynntur á félagsfundum á næstum dögum.  Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst í næstu viku og henni lýkur 15. júlí n.k. Sjá samninginn hér

Póstlisti