Catégorie: Fréttir
2. júlí, 2013
Fréttir
Fjölskylduhátíð FBM og Miðdalsfélagsins verður haldin laugardaginn 3. ágúst n.k. í Miðdal. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði og hefst kl 14.00 Körfuboltakeppni Handboltakeppni Minigolf Hoppukastali og hoppudýna Andlitsmálning og blöðrur Brenna og söngur verða kl. 21.30. Félagsmenn FBM eru hvattir til að fjölmenna á hátíðina Stjórn FBM
28. júní, 2013
Fréttir
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði samning við Verkiðn um ráðstöfun framlags vegna keppna í iðn- og verkgreinum. 27. júní undirrituðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Björn Ágúst Sigurjónsson formaður Verkiðnar samstarfssamning við Verkiðn um Íslandsmót iðn- og verkgreina árið 2014 og þátttöku íslenskra keppenda á World Skills í Brasilíu árið 2015. Samningurinn er […]
26. júní, 2013
Fréttir
Heimsmeistaramót iðn-og verkgreina verður haldið í 42 sinn í Leipzig 2.-7. júlí 2013. Alls hafa 1024 keppendur verið skráðir til leiks frá 54 þjóðum. Samhliða keppninni fara fram ráðstefnur og fundir um menntamál í iðn- og verkgreinum sem um 3.500 manns munu sækja. Laufey Dröfn Matthíasdóttir keppir í grafískri miðlun, með henni fer Hjörtur Guðnason […]
25. júní, 2013
Fréttir
Í nýju viðtali í netsjónvarpi ASÍ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, frá gildi þess að vera í stéttarfélagi. Tilefnið er útgáfa á nýjum bæklingi sem m.a. er hægt að nálgast hér á heimasíðu ASÍ Viðtalið við Halldór Grönvold er í netsjónvarpi ASÍ.
24. júní, 2013
Fréttir
Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna. Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa allir myndhöfundar. Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna www.myndstef.is og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 16. […]
2. júní, 2013
Fréttir
Laugardaginn 8. júní verður árlegur vinnu- og hreinsunardagur í Miðdal. Verkefni vinnudagsins eru margvísleg t.d. klipping trjáa og runna á svæðinu og við göngustíga merking gönguleiða Takið með ykkur klippur, stórar sem smáar, sagir til að saga tré,skóflur og önnur verkfæri sem þið teljið að komi að gagni. Mæting kl. 11.00 við tjaldmiðstöðina FBM býður […]
29. maí, 2013
Fréttir
Óskar Jakobsson prentari í Pixel og stjórnarmaður í FBM hefur ákveðið að hlaupa til Ísafjarðar. Leiðin er 450 km. sem hann hyggst hlaupa á 10 dögum! Hann leggur af stað frá N1 á Höfðabakka kl. 17.30 fimmtudaginnn 30. maí. Verkefnið heldur úti facebook síðunni Hlaupið heim en það er til styrktar fjölskyldu á Ísafirði sem […]
8. maí, 2013
Fréttir
Kjarakönnun FBM og SI sem framkvæmd var í mars síðastliðnum ætti að berast öllum félagsmönnum á næstu dögum. Hér er hægt að nálgast vefútgáfu af könunninni.
6. maí, 2013
Fréttir
Við höfum opnað fyrir leigu á vikum í orlofshúsum sem var skilað inn í sumarúthlutun 2013. Nú gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Félagsmenn missa 24-36 punkta við leigu á orlofshúsum yfir sumartímann. Sjá laus tímabil á orlofsvefnum hér
29. apríl, 2013
Fréttir
Dagskrá 1. maí 2013 Safnast saman á Hlemmi kl. 13.00Gangan leggur af stað kl. 13.30Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi Útfundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10 Fundarsetning , Þórarinn Eyfjörð fundarstjóri Kvennakór Reykjavíkur syngur 2 lög Ólafía Björk Rafnsdóttir formaður VR Jóns Sig með blásurum flytur 2 lög Snorri Magnússon […]