Catégorie: Fréttir

Skrifstofa FBM verður lokuð fimmtudaginn 6. september frá kl. 12

5. september, 2012

Fréttir

Skrifstofa FBM verður lokuð fimmtudaginn 6. september frá kl. 12 vegna útfarar Grétars Sigurðssonar, heiðursfélaga FBM. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 13.00.   kveðja starfsfólk FBM

MIÐDALSMÓTIÐ – GOLFMÓT FBM 2012

21. ágúst, 2012

Fréttir

MIÐDALSMÓTIÐ – 2012 Aðalsteinn Örnólfsson Meistari FBM.Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal     11. ágúst. Þetta var í sautjánda sinn sem mótið er haldið í Miðdal. 19 þátttakendur mættu til leiks.Keppt var skv. punktakerfi með forgjöf í karla- og kvennaflokki. Einnig var keppt í  höggleik án forgjafar um Postillonbikarinn. Eftir kaffiveitingar […]

Lokað í dag frá kl. 12

3. ágúst, 2012

Fréttir

Skrifstofa FBM verður lokuð í dag frá kl. 12. Opnum aftur þriðjudaginn 7. ágúst kl. 9. Vonumst til að sjá sem flesta á fjölskylduhátíð FBM í Miðdalnum á morgun laugardaginn 4. ágúst  sjá nánar hér Kveðja. Starfsfólk FBM

Fjölskylduhátíð FBM 4. ágúst

5. júlí, 2012

Fréttir

Fjölskylduhátíð FBM og Miðdalsfélagsins verður haldin laugardaginn 4. ágúst n.k. í Miðdal. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði og hefst kl 13.30 Körfuboltakeppni Handboltakeppni Minigolf Hoppukastali og hoppudýna Andlitsmálning og blöðrur Brenna og söngur verða kl. 21.30. Félagsmenn FBM eru hvattir til að fjölmenna á hátíðina Stjórn FBM

Forseti ASÍ ávarpar Aung San Suu Kyi

15. júní, 2012

Fréttir

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ ávarpaði í dag friðarverðlaunahafa Nóbels, Aung San Suu Kyi fyrrum leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma (nú Myanmar). Ávarpið flutti forseti ASÍ fyrir hönd Norrænu verkalýðshreyfingarinnar á þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf. Gylfi þakkaði Aung San Suu Kyi fórnfúsa baráttu hennar fyrir mannréttindum og ekki síður baráttu hennar fyrir réttindum launafólks í heimalandi […]

Námskeið í bókverkagerð með Rebeccu Goodale 24.-26. ágúst

14. júní, 2012

Fréttir

Menningamiðstöðin Gerðuberg heldur námskeið í bókverkagerð 24.-26. ágúst næst komandi. Kennari er bandaríska listakonan Rebecca Goodale. Sjá nánar á vefsíðu Gerðubergs www.gerduberg.is  

Verkefnastyrkir og ferða- og menntunarstyrkir Myndstefs 2012

Fréttir

Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna.  Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa allir myndhöfundar. Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna www.myndstef.is og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 18. […]

Vatnsframkvæmdir í Miðdal.

12. júní, 2012

Fréttir

  Nú standa til framkvæmdir á vatnsveitubúnaði í Miðdal fyrir ofan efra hverfi. Fara þarf með vinnuvél upp ána vegna framkvæmdanna. Nýr búnaður verður settur við upptöku vatnsins og tankur grafinn í jörðu með yfirfalli  fyrir neðan upptök vatnsveitunnar. Að þessum tanki verður mun sverari leiðsla en nú er og á hún að „fæða“ leiðsluna […]

Félagsfundur FBM

Fréttir

Boðað er til félagsfundar fimmtudaginn 14. júní kl. 17.00 í félagsheimilinu Hverfi sgötu 21 Dagskrá:1. Sala á Hverfisgötu 21, afgreiðsla kauptilboðs2. Kynning á kjarakönnun FBM og SA3. Önnur mál Félagsmenn eru hvattir til að mæta Reykjavík, 7. júní 2012Stjórn Félags bókagerðarmanna

Skák áskorun á ASÍ

31. maí, 2012

Fréttir

Öflugir krakkar úr Skákakademíu Reykjavíkur mættu harðsnúnu liði ASÍ í skák einvígi í gær. Sveit ASÍ var skipuð þeim Eggerti Ísólfssyni, Georg Páli Skúlasyni og Jóni Úlfljótssyni frá Félagi bókagerðarmanna og Tryggva Marteinssyni frá Eflingu og höfðu þeir sigur 10-6 eftir töluverða baráttu Sjá myndir og nánari frétt á vef ASÍ

Póstlisti