PRENTARINN er kominn á vefinn
20. janúar, 2015Við viljum vekja athygli á því að Prentarinn er kominn á vefinn. Sjá hér Einnig viljum við minna á að síðasti dagur til að senda inn lausn á krossgátunni er 23. janúar.
Við viljum vekja athygli á því að Prentarinn er kominn á vefinn. Sjá hér Einnig viljum við minna á að síðasti dagur til að senda inn lausn á krossgátunni er 23. janúar.
Námsvísir vorannar IÐUNNAR 2015 er kominn á vefinn. Yfir 230 fjölbreytt námskeið verða í boði. Í næstu viku fer námsvísinn í dreifingu meðal félagsmanna. Sjá nánar: http://www.idan.is/180-forsida/911-namsvisir-vorannar-2015-er-kominn-ut
Nú er búið að opna fyrir tímabilið eftir páska fram að sumarúthlutun, eða frá 8. apríl – 5. júní. Sjá nánar á http://www.orlof.is/fbm/
Bridgemót FBM 2014 Rúnar Gunnarsson og Ísak Örn Sigurðsson sigruðu árlega tvímenningskeppni FBM sem haldin var sunnudaginn 13. desember s.l. Fimm pör mættu til leiks. Keppt var um rétt til þátttöku á bridgehátíð Bridgesambands Íslands. Í fyrsta sæti urðu Rúnar Gunnarsson og Ísak Örn Sigurðsson með 67 stig, í öðru sæti Sæmundur Árnason og Burkni […]
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir vonbrigðum með framkomnar tillögur stjórnarmeirihlutans við aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2015. Sjá nánar.
Athygli er vakin á desemberuppbót, sem kemur til greiðslu 1.-15. desember n.k. Samkvæmt kjarasamningi FBM/SA og FBM-FGT/SÍA skal upphæðin vera kr. 73.600 til þeirra sem unnið hafa fullt starf 1.12.2013 til 30.11.2014. Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma. Sjá nánar í kjarasamningum.
Sunnudaginn 14. desember verður jólaskemmtun fyrir félagsmenn og börn þeirra. Jólasveinar mæta með söng og gleði, einnig verður boðið upp á leiksýningu fyrir börn á aldrinum 2 – 9 ára. Sjá nánar
Capacent Gallup gerði launakönnun fyrir FBM og SI á tímabilinu 04. mars – 22. mars 2013 með það að markmiði að kanna laun og starfskjör félagsmanna í Félagi bókagerðarmanna
Bridgemót verður á vegum FBM, laugardaginn 13. desember kl. 13 í húsakynnum þeirra á Stórhöfða 31. Sjá nánar
Bókasamband Íslands gerði könnun á prentstað íslenskra bóka í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2014. Fjöldi titla prentaðir hér á landi eru 377, fækkar um 64 frá fyrra ári en sem hlutfall af heild dregst það lítillega saman milli ára 59,1% í ár en árið 2013 62,6%. Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 638 í Bókatíðindunum en var […]