Fréttir

10% fækkun titla, 59,1% af bókatitlum prentaðir á Íslandi

25 nóv. 2014

Bókasamband Íslands gerði könnun á prentstað íslenskra bóka í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2014. Fjöldi titla prentaðir hér á landi eru 377, fækkar um 64 frá fyrra ári en sem hlutfall af heild dregst það lítillega saman milli ára 59,1% í ár en árið 2013 62,6%.

Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 638 í Bókatíðindunum en var 704 árið 2013 sem er um 10% fækkun titla.

Skoðað var hlutfall prentunar innanlands og erlendis eftir flokkum. Fram kemur að stór hluti barnabóka er prentaður erlendis m.a. vegna þess að samprent er algengt í útgáfu barnabóka.

  • Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru 172; 113 (66%) eru prentaðar á hér á landi og 59 (34%) erlendis.
  • Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 170; 148 (87%) prentuð hér á landi og 22 (13%) erlendis.
  • Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru 107; 51 (48%) prentaðar hérlendis og 56 (52%) erlendis.
  • Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru 189; 65 (34%) prentaðar hér á landi og 124 (66%) erlendis.

Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka prentaðra og hlutfall af heild, jafnframt eru til samanburðar tölur fyrir árið 2013:

Árið 2014 Fjöldi titla  %
Ísland 377 59,1
Evrópa 146 22,9
Asía 115 18,0
Samtals
638 100
Árið 2013 Fjöldi titla  %
Ísland 441 62,6
Evrópa 137 19,5
Asía 126 17,9
Samtals
704 100

Til baka

Póstlisti