Fréttir

Ferðastyrkir á IPEX 2017. Umsóknarfrestur til 15. ágúst ...

6 júl. 2017
Um er að ræða 10 ferðastyrki á IPEX 2017, sem fer fram dagana 31. október – 3. nóvember í Birmingham á Englandi. sjá auglýsingu hér

Útskrift nýsveina í prentiðngreinum 2017

6 júl. 2017
Útskrift nýsveina fór fram í IÐUNNI fræðslusetri 22. júní s.l. Tólf nýsveinar útskrifuðust, þ.e. einn í bókbandi, þrír í prentun og átta í prentsmíði/grafískri miðlun. Nýsveinar, meistarar, prófnefndarmenn, kennarar úr Tækniskólanum og aðstandendur nýsveina mættu í útskriftarveislu sem IÐAN, GRAFÍA og Samtök iðnaðarins héldu þeim til heiðurs.  Eftirtalin hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur á sveinsprófi. […]

Mótframlag launagreiðenda í lífeyrissjóð verður 10% frá og ...

23 jún. 2017
Mótframlag launagreiðenda hækkar 1. júlí úr 8,5% í 10%. Skv. kjarasamningi GRAFÍU og SA frá 21. janúar 2016 var samið um hækkun mótframlags launagreiðenda um alls 3,5% í áföngum. Þann 1. júlí hefur komið til 2% hækkun. Hækkunin kemur að fullu til framkvæmda 1. júlí 2018 þegar mótframlag launagreiðenda verður 11,5%. Í samningnum var gert […]

Tilgreind séreign

23 jún. 2017
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins vegna tilgreindrar séreignar voru samþykktar af fulltrúum á aukaársfundi Birtu lífeyrissjóðs í gær, 22. júní. Samþykktirnar hafa verið sendar Fjármálaeftirlitinu til umsagnar og bíða staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis. Sjá nánar í frétt á heimasíðu Birtu: https://birta.is/um-sjodinn/frettir/breytingar-%C3%A1-sam%C3%BEykktum-sj%C3%B3%C3%B0sins/   Sjá einblöðung hér

Frá aðalfundi GRAFÍU

20 jún. 2017
Aðalfundur Grafíu – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum var haldinn 4. apríl 2017 kl. 16.30 á Stórhöfða 31, Reykjavík Eftir að búið var að setja fundinn var látinna félagsmanna minnst. Í tilefni af því að 120 ár uppá dag voru liðin frá því Hið íslenska prentarafélag, undanfara félags okkar var stofnað, flutti sagnfræðingurinn Stefán Pálson […]

Aukaársfundur Birtu, fimmtudaginn 22. júní nk. kl. 17.00

16 jún. 2017
Stjórn Birtu lífeyrissjóðs boðar til aukaársfundar Birtu, fimmtudaginn 22. júní 2017 kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, í salnum Hvammi. Sjá auglýsingu Auglýsing Birtu lífeyrissjóðs

Umsjón í Miðdal – tjaldsvæðið í Miðdal – ...

9 jún. 2017
Tjaldsvæðið í Miðdal er opið. Gjaldskráin er óbreytt milli ára þ.e. kr. 1.200 fyrir félagsmenn pr. tjald, tjaldvagn, fellihýsi eða hjólhýsi pr. nótt. Gestir þeirra greiða kr. 1.800 pr. nótt. Rafmagn er kr. 500 pr. nótt. Golfkort fyrir tvo á golfvöll Dalbúa kr. 1.000 pr. dag. (Greitt er kr. 1.500 en kr. 500 fæst endurgreitt […]

Samið við Golfklúbbinn Dalbúa um 50% afslátt fyrir ...

6 jún. 2017
Eins og félagsmönnum er kunnugt hefur Grafía átt í löngu og góðu samstarfi við Golklúbbinn Dalbúa, sem rekur golfvöllinn í Miðdal við Laugarvatn, um þjónustu við félagsmenn Grafíu. Undanfarin ár hefur þetta samstarf m.a. leitt til þess að þeir sem hafa gist í orlofshúsum félagsins í Miðdal hafa geta notað golfkort sem fylgja húsunum til […]

Afsláttarkjör á flugmiða WOW og Icelandair

4 maí. 2017
Vekjum athygli félagsmanna GRAFÍU á að nú er hægt að kaupa gjafabréf á afsláttarkjörum á orlofsvef félagsins. Gjafabréf WOW sem gildir kr. 10.000,- kostar kr. 8.500, – eða samsvarandi 15% afslætti. Gjafabréf Icelandair sem gildir kr. 25.000 kostar kr. 22.500, – eða samsvarandi 10% afslætti. Engin takmörk eru hversu mörg bréf félagsmenn mega kaupa. Munið […]

1. maí kaffi stéttarfélaganna á Stórhöfða 27

26 apr. 2017
Munið árlegt 1. maí kaffi Rafiðnaðasambandsins, Grafíu og Matvís að Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin í húsnæði Rafiðnaðrskólans að lokinni kröfugöngu og útifundi. 1. MAÍ KAFFI

Póstlisti