Fréttir
Desemberuppbót 2026
13
nóv. 2026
Uppbótin greiðist í síðasta lagi þann 15. desember. Desemberuppbótin á almenna markaðnum er 114.000 kr. á árinu 2026
Kaffi eldri félaga 11. nóvember nk.
9
nóv. 2026
Fagfélögin bjóða félagsfólki á lífeyrisaldri til kaffiboðs miðvikudaginn 11. nóvember nk. Kaffiboðin eru haldin annan miðvikudag í mánuði yfir vetrartímann. Kaffið er haldið á Stórhöfða 29-31 en athugið að gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin. Boðið stendur yfir milli klukkan 13 og 15.
Svanur Jóhannesson bókbindari og heiðursfélagi GRAFÍU er látinn
4
nóv. 2026
Svanur Jóhannesson bókbindari og heiðursfélagi GRAFÍU látinn 97 ára að aldri. Svanur Jóhannesson, bókbindari, f. 23. september 1929. Varð félagi 1951. Nám í bókbandi 1947-1951 hjá Bókfelli hf. Í Reykjavík, í Iðnskólanum í Reykjavík 1949, sveinspróf 17. maí 1952. Nám í Héraðsskólanum í […]
Samkomulag við SA í höfn – kjarasamningar halda ...
15
okt. 2026
Fagfélögin, VR og Landssamband íslenskra verzlunarmanna hafa náð samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið náðist laust fyrir klukkan 16 í dag, á ögurstundu, og felur í sér nýtt forsenduákvæði sem heimilar að stytta gildistíma samninganna ef verðbólga verður yfir tilteknum viðmiðum haustið 2027. Kjarasamningarnir halda því gildi sínu. Sjá nánar í frétt […]
Kaffi eldri félaga fellur niður
12
okt. 2026
Vegna óviðráðanlegra ástæðna fellur kaffi eldri félaga niður, miðvikudaginn 14. október nk.
Georg Páll býður sig fram til forseta ASÍ
1
okt. 2026
Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sambandsins. GRAFÍA tilheyrir Rafiðnaðarsambandi Íslands og þar með Fagfélögunum. Georg á að baki nær 40 ára starf í verkalýðs- og kjaramálum. Hann var kjörinn formaður Iðnnemasambands Íslands árið 1987 og tók […]
Framboðsfrestur vegna trúnaðarráðs
3
sep. 2026
Framboðsfrestur við kosningar til Trúnaðarráðs GRAFÍU stéttarfélags kjörtímabilið 2026 – 2028 Í samræmi við lög félagsins (sbr. 6. og 7. kafla) er hér með lýst eftir tillögum um 8 aðalmenn til setu í Trúnaðarráðinu og 3 til vara. Tillögur um félagsfólk í Trúnaðarráð skulu studdar af að lágmarki 20 félagsmönnum. Frestur til að skila tillögum […]
Sumarlokun frá 20. júlí til 3. ágúst
6
júl. 2026
Skrifstofa Fagfélaganna – VM, RSÍ og MATVÍS – verður lokuð frá 20. júlí til 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Skrifstofan verður opnuð aftur þriðjudaginn 4. ágúst kl. 8:00. Kjaramál: Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst til kjarasvid@fagfelogin.is sé um kjaramál að ræða. Orlofshús: Ef um er að ræða brýna aðstoð vegna orlofshúsa má senda tölvupóst […]
Haustbókanir orlofshúsa
1
jún. 2026
Opnað verður fyrir haustbókanir orlofshúsa félagsins á morgun 2. júní. Sem fyrr gildir reglan, „fyrst koma fyrst fá“ um bókanir á þessum tíma. Opnað verður fyrir bókanir hjá RSÍ klukkan 09:00. Tímabilið sem um ræðir er frá 21. ágúst til 4. janúar 2027 Bókað er á orlofsvef RSÍ
Golfmót Fagfélaganna
13
maí. 2026
Golfmót Fagfélaganna verður haldið hjá Golfklúbbi Öndverðarness föstudaginn 12. júní 2026 Mæting er í síðasta lagi kl. 9:15 og ræst út af öllum teigum samtímis kl. 10.00 Mótið er opið öllum golfurum í MATVÍS, RSÍ, FFÍ, SVG og VM og hvetjum við félagsfólk til þátttöku á einum […]