Fréttir

Vinningshafar í Kjarakönnun GRAFÍU og SI

15 nóv. 2017
Kjarakönnun GRAFÍU og SI var lokað fyrir nokkrum dögum og dregið hefur verið úr innsendum svörum. 10 heppnir félagsmenn fá 10.000 kr. gjafabréf. GALLUP hefur samband við vinningshafa á næstu dögum. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar fljótlega. GRAFÍA þakkar félagsmönnum fyrir þátttökuna.  

Hraðskákmót GRAFÍU 2017

9 nóv. 2017
Hraðskákmót GRAFÍU verður haldið fimmtudaginn 23. nóvember kl. 20.00 Sjá auglýsingu

Bridgemót GRAFÍU 2017 verður haldið laugardaginn 9. desember ...

9 nóv. 2017
Tvímenningsmót GRAFÍU verður haldið laugardaginn 9. desember kl. 13 Mótið verður haldið í húsnæði Rafiðnaðarskólans Stórhöfða 27. 1. hæð (gengið inn Grafarvogsmegin) Spilastjóri er Rúnar Gunnarsson. Veitt verða bókaverðlaun fyrir 3 efstu sætin auk þess sem sigurvegarar fá rétt til að mynda par eða sveit á Briddshátíð Bridgesambands Íslands.   Sjá auglýsingu hér: Bridgemót-2017  

Útskrift Upplýsingatækniskólans í grafískri miðlun og prentun

1 nóv. 2017
Útskriftarnemendur Upplýsingatækniskólans í grafískri miðlun og prentun, bjóða þér á sýningu laugardaginn 4. nóvember kl. 13:00-15:00. Líttu við og fagnaðu áfanganum í Vörðuskóla við Skólavörðuholt. Inngangur frá Barónsstíg. Allir velkomnir

Iðnaðarmannahús á Stórhöfða 31

30 okt. 2017
Iðnaðarmannafélögin, GRAFíA, MATVÍS – matvæla og veitingasamband Íslands, FIT félag iðn og tæknigreina, RSÍ – Rafiðnaðarsamband Íslands, Samiðn og Byggiðn – félag byggingamanna hafa keypt saman Stórhöðfa 31. Félögin munu hefja samstarf í húsinu á næsta ári en félögin sem fyrir eru í húsinu, RSÍ, MATVÍS og GRAFÍA, munu starfa áfram þar á sama tíma […]

GRAFÍA harmar uppsagnir og ákvörðun Odda að hætta ...

24 okt. 2017
GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum harmar ákvörðun Prentsmiðjunnar Odda að leggja af framleiðslu innbundinna bóka á fyrsta ársfjórðungi árs 2018. Ákvörðunin felur í sér fækkun starfa sem eru mjög slæmar fréttir fyrir félagsmenn GRAFÍU og prentiðnaðinn. Búast má við að niðurstaðan sé óafturkræf varðandi framleiðslu innbundinna bóka í Odda en prentsmiðjan hefur framleitt langflestar […]

Bjarg íbúðarfélag – könnun

19 okt. 2017
(English and Polish version below) Kæri viðtakandi, Bjarg Íbúðafélag, stofnað af ASÍ og BSRB, er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Bjarg leitar nú til félagsmanna ASÍ og BSRB í tengslum við áherslur og þarfir við hönnun nýju leiguíbúðanna. Innlegg félagsmanna er afar mikilvægt í […]

Kjarakönnun GRAFÍU

10 okt. 2017
Við minnum félagsmenn á að taka þátt í kjarakönnun GRAFÍU og SI. Þátttakendur geta átt von á 10.000 kr. gjafabréfi.   Sjá auglýsingu hér  

Námsvísir IÐUNNAR

14 sep. 2017
Námsvísir IÐUNNAR fræðsluseturs fyrir haustönn 2017 er kominn út. Yfir 150 spennandi námskeið fyrir fagfólk í iðnaði eru í boði á haustönn. Kynntu þér fjölbreytt úrval námskeiða á vef IÐUNNAR (www.idan.is) eða skoðaðu námsvísinn í heild sinni hér (https://issuu.com/idan-fraedslusetur/docs/idan-namsvisir-haust-2017). Skráning á námskeið fer fram á vef IÐUNNAR (www.idan.is).

Umsjónarmaður orlofssvæðis í Miðdal

21 ágú. 2017
GRAFÍA stéttarfélag auglýsir eftir umsjónaraðila orlofssvæðis félagsins í Miðdal, Bláskógabyggð. Í starfinu felst almenn umsjón og viðhald orlofshúsa og orlofssvæðis. Heilsársbúseta er skilyrði. Starfinu fylgir íbúðarhúsnæði og aðstaða í útihúsum. Starfið er hlutastarf að vetri en fullt starf yfir sumartímann. Umsóknir sendist á georg@grafia.is eða til GRAFÍU stéttarfélags, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík merkt „Miðdalur“ Umsóknarfrestur […]

Póstlisti