Fréttir

Samningur Grafíu og SÍA/FA samþykktur

24 feb. 2016
Samningur Grafíu og SÍA/FA var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Alls voru 77 á kjörskrá, af þeim kusu 8 eða 10,4%.   

Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu ASÍ og aðildarfélaga vegna SA

24 feb. 2016
Sameiginlegri allsherjaratkvæðagreiðslu félagsmanna aðildarsamtaka ASÍ um kjarasamning milli aðildarsamtaka ASÍ og SA frá 21. janúar 2016 lauk kl. 12 á hádegi í dag. Já sögðu 9.274 eða 91,28%. Nei sögðu 832 eða 7,81%. Auðu skiluðu 97 eða 0,91%. Kjarasamningurinn var því samþykktur. Á kjörskrá voru 75.635. atkvæði greiddu 10.653 eða 14,08%. Kjörstjórn aðildarsamtaka ASÍ

Kjarasamningur GRAFÍU og SÍA/FA samþykktur samhljóða

24 feb. 2016
Kosningu vegna kjarasamnings GRAFÍU og SÍA/FA vegna grafískra hönnuða lauk kl. 12 í dag 24. febrúar. Á kjörskrá voru 77, 8 kusu eða 10,4%. Allir sögðu já eða 100%. Samningurinn er því samþykktur.  

MINNUM Á KOSNINGUNA!

23 feb. 2016

Nýr kjarasamningur ASÍ og SA

12 feb. 2016
Skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnlífsins. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2018. Sjá fréttatilkynningu hér Sjá kjarasamning hér

KJARASAMNINGUR GRAFÍU OG SÍA/FA

11 feb. 2016
Hér má sjá kjarasamning GRAFÍU OG SÍA/FA  sem fer í atkvæðagreiðslu í næstu viku. Kjarasamningur hér

Verðlaunahafar á nýsveinahátíð IMFR 2016

9 feb. 2016
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík stendur árlega fyrir nýsveinahátið í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar eru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi ásamt því að heiðursiðnaðarmaður ársins er valinn og honum veitt gullverðlaun. 24 nýsveinar fengu silfur- og bronsverðlaun á hátíðinni sem haldin var 6. febrúar s.l. Axel Fannar Friðriksson, grafísk miðlun/prentsmíð, hlaut silfurverðlaun og Margrét Lára Höskuldsdóttir,grafísk […]

Niðurstaða úr samkeppni um merki Grafíu

8 feb. 2016
Okkur er það mikil ánægja að tilkynna verðlaunahafann í samkeppninni um merki Grafíu. Loftur Leifsson, grafískur hönnuður á tillöguna sem bar sigur úr bítum. Afhending verðalauna var föstudaginn 5. febrúar, á degi íslensks prentiðnaðar sem haldinn var hátíðlegur í IÐUNNI prent- og miðlunarsviði. Innsendingar voru 153 frá 52 einstaklingum. 16 merki komust í úrslit og […]

Verðlaunakrossgáta PRENTARANS

7 feb. 2016
Dregið hefur verið úr réttum lausnum í Verðlaunakrossgátu PRENTARANS. Ragnheiður Linda Eyjólfsdóttir hlaut 1. verðlaun sem er kr. 20.000,- og Guðmundur Þ. Egilsson hlaut 2. verðlaun sem er helgardvöl að eigin vali í orlfoshúsum Grafíu í vetur. Við viljum þakka öllum þátttakendum fyrir innsendar lausnir.

Félagsfundur, mánudaginn 8. febrúar

1 feb. 2016
Félagsfundur Grafíu verður á mánudaginn 8. febrúar n.k., á Stórhöfða 31, 1. hæð. Sjá nánar auglýsingu hér

Póstlisti