Fréttir

Ferð eldri félaga GRAFÍU 18. ágúst s.l.

30 ágú. 2016
Árleg ferð eldri félaga GRAFÍU og maka þeirra var farin um Suðurland 18. ágúst s.l. Hópurinn sem taldi 64 lagði af stað frá BSÍ að morgni dags og hélt áleiðis til Hveragerðis þar sem Svanur Jóhannesson heiðursfélagi sýndi hópnum nýafhjúpuð skilti af listamönnum frá Hveragerði í Listigarðinum við Varmá og einnig var hverasvæðið skoðað þar […]

Sjóðfélagafundur Sameinaða lífeyrissjóðsins þriðjudaginn 30.ágúst kl. 17

26 ágú. 2016
Sameinaði lífeyrissjóðurinn boðar til sjóðfélagafundar, til þess að kynna væntanlega sameiningu við Stafi lífeyrissjóð, þriðjudaginn 30. ágúst 2016 kl. 17 á Grand Hóteli Reykjavík.Allir sjóðfélagar velkomnir!Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins    

100 ára afmæli ASÍ – frítt í Árbæjarsafn

22 ágú. 2016
Alþýðusamband Íslands fagnar 100 ára afmæli í ár og einn liður í að minnast þeirra tímamóta er afmælisboð ASÍ í Árbæjarsafni þann 28. ágúst nk. Alþýðusambandið býður frítt inn á safnið þann dag og fjölbreytta dagskrá sem bregður birtu á aðstæður og aðbúnað íslensks verkafólks á síðustu öld.    Sjá nánar um leiðsagnir og dagskrá […]

Tryggvi K. Rúnarsson meistari í golfi 2016

6 ágú. 2016
Miðdalsmótið, golfmót Grafíu – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 6. ágúst. Veðurguðirnir léku við keppendur og skartaði Miðdalur sínu fegursta. 16 þátttakendur mættu til leiks. Keppt var skv. punktakerfi með forgjöf. Einnig var keppt í höggleik án forgjafar um Postillonbikarinn. Eftir kaffiveitingar var keppendum raðað á teiga og […]

Fjölskylduhátíð í Miðdal

10 júl. 2016
Árleg fjölskylduhátíð Grafíu og Miðdalsfélagsins verður í haldin í Miðdal, laugardaginn 30. júlí nk.   Sjá nánar hér

Golfmót GRAFÍU Miðdalsmótið 2016 verður 6. ágúst n.k.

6 júl. 2016
Árlegt golfmót GRAFÍU Miðdalsmótið 2016 verður haldið laugardaginn 6. ágúst n.k. á golfvelli Dalbúa í Miðdal. Skráning fer fram á skrifstofu GRAFÍU í síma 552 8755, grafia(hjá)grafia.is einnig er hægt að skrá sig á golf.is   Sjá nánari dagskrá hér  

Sameinaði og Stafir hefja formlegt samrunaferli

1 júl. 2016
Tilkynning frá Sameinaða lífeyrissjóðnum og Stöfum lífeyrissjóði 23. júní 2016 Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Stafir lífeyrissjóður hefja formlegt sameiningarferli Stjórnir Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs hafa samþykkt að hefja formlegt samrunaferli með það að markmiði að bera sameiningu sjóðanna undir atkvæði á aukaársfundum í haust. Stjórnir beggja sjóða staðfestu þetta í dag í ljósi niðurstöðu könnunarviðræðna […]

Lausar vikur í júní í orlofseignum Grafíu

23 maí. 2016
Við vekjum athygli á því að nokkrar vikur eru lausar í júní í  orlofshúsunum í Miðdal, Ölufsborgum og í íbúð félagsins á Akureyri. Punktafrádráttur eru 20 punktar fyrstu tvær vikurnar í júní. Hægt er að sækja um á vefnum eða að hafa sambandi við skrifstofu í síma 552 8755

Vinnudagur í Miðdal þann 28. maí

17 maí. 2016
Vinnudagur Grafíu og Miðdalsfélagsins verður laugardaginn 28. maí n.k. Sjá nánar hér

Sameining Sameinaða lífeyris-sjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs skoðuð

6 maí. 2016
Sameiginleg yfirlýsing sjóðanna: „Stjórnir Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs hafa samþykkt að hefja könnunarviðræður með sameiningu sjóðanna í huga. Hugmynd um slíkt hefur áður verið reifuð óformlega en það er ekki fyrr en nú að stjórnir sjóðanna samþykkja að láta reyna á sameiningu með formlegum hætti. Sameinaði lífeyrissjóðurinn er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins ef miðað […]

Póstlisti