Félag Bókagerðamanna - page 59

Samningur SA og FBM
59
starfsmenn annan fulltrúa í samstarfsnefnd úr sínum hópi. Kosningarétt
hafa þeir starfsmenn sem trúnaðarmaður er ekki fulltrúi fyrir.
Kjörtímabil er tvö ár frá tilkynningu um kosningu nema annað hafi verið
ákveðið.
Við kosningu trúnaðarmanna í samstarfsnefnd hefur hver trúnaðarmaður
eitt atkvæði.
Fari fram kosning meðal starfsmanna ber atvinnurekanda að leggja fram
lista yfir starfsmenn og veita aðra þá aðstoð við gerð kjörgagna og
kosningu sem þörf er á.
Með trúnaðarmönnum er átt við þá trúnaðarmenn sem starfa á grundvelli
laga nr. 80/1938 og ákvæða kjarasamninga um trúnaðarmenn. Aðrir
fulltrúar starfsmanna í samráðsnefnd njóta sömu verndar og trúnaðar-
menn að því er varðar störf þeirra í samráðsnefnd.
3.3. Veiting upplýsinga samkvæmt lögum um upplýsingar og samráð skal fara
fram á vettvangi samstarfsnefndar nema samkomulag sé um aðra
framkvæmd innan samstarfsnefndarinnar.
3.4. Samráð við starfsmenn samkvæmt lögum um upplýsingar og samráð
skal eiga sér stað á vettvangi samstarfsnefndarinnar nema samkomulag
sé um aðra framkvæmd innan samstarfsnefndarinnar
3.5. Samstarfsnefnd setur sér starfsreglur.
3.6. Fulltrúar atvinnurekanda bera ábyrgð á að kalla samstarfsnefndina
saman en miða skal við að hún komi saman ekki sjaldnar en tvisvar á ári
nema samkomulag verði um annað í nefndinni.
3.7 Upplýsinga- og samráðskylda fyrirtækisins verður virk þegar trúnaðar-
menn eða eftir atvikum starfsmenn hafa kosið sér fulltrúa í samráðsnefnd
samkvæmt ofangreindum reglum og tilkynnt fyrirtækinu um kosninguna.
4. Fyrirtækjasamstæður
Í fyrirtækjasamstæðum með sjálfstæðum dótturfélögum er með sam-
komulagi í samstarfsnefndum viðkomandi dótturfélaga heimilt að stofna
sameiginlega samstarfsnefnd á vettvangi móðurfélagsins sem í eiga sæti
fulltrúar úr samstarfsnefndum dótturfélaganna.
Þar er heimilt að taka til umræðu mál sem hafa sameiginlega þýðingu
fyrir dótturfélögin.
Eins er heimilt, þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, að samstarfs-
nefnd á vettvangi móðurfyrirtækisins taki við hlutverki samstarfsnefnda
einstakra dótturfyrirtækja.
Sameiginleg samstarfsnefnd á vettvangi móðurfélagsins skal lögð niður
krefjist annar hvor aðila, fulltrúar starfsmanna í nefndinni eða fulltrúar
fyrirtækisins í nefndinni þess með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara.
5. Samráðsnefnd SA og ASÍ
Samráðsnefnd skipuð tveimur fulltrúum frá hvorum samningsaðila skal
fjalla um framkvæmd samningsins svo og útfærslu og túlkun einstakra
ákvæða eftir því sem þurfa þykir.
1...,49,50,51,52,53,54,55,56,57,58 60,61,62,63,64,65,66,67,68,69,...71
Powered by FlippingBook