Félag Bókagerðamanna - page 57

Samningur SA og FBM
57
ASÍ). Áhersla er lögð á að matið taki bæði til opinbera- og almenna
markaðarins og nái jafnt til aðal- og undirverktaka. Jafnframt er lögð áhersla á
að matið fái viðurkennda stöðu í lögum eða reglugerð. Við mat á bjóðendum
verði meginreglan að starfsmenn séu í föstu ráðningarsambandi.
SA og ASÍ hafa ennfremur komið sér saman um nánari reglur um hvernig skuli
standa að gerð útboðsgagna á grundvelli 42. – 45. gr. laga nr. 84/2007, um
opinber innkaup, vali á tilboði á grundvelli 73. og 77. gr. laga nr. 84/2007 og
skilum á greiðslum á grundvelli staðals IST30:2003, liður 31.5 (sjá fylgiskjal 2
með samningi SA og samninganefndar ASÍ).
Yfirlýsing 2008
um Endurhæfingarsjóð
Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum
misserum rætt saman um nýtt fyrirkomulag endurhæfingar. Samkomulag er
um að hefja þróun þeirra á árinu 2008 með því að skipuleggja þjónustu og
veita úrræði fyrir þá starfsmenn sem veikjast til lengri tíma og slasast þannig
að vinnugeta skerðist. Markmið aðila er að koma að málum eins snemma og
kostur er til að stuðla að því að hver einstaklingur verði svo virkur á
vinnumarkaði sem vinnugeta hans leyfir.
Sérstakur sjóður, Endurhæfingarsjóður, verður stofnaður í því skyni að skipu-
leggja og hafa umsjón með störfum þjónustufulltrúa sem verða aðallega á
vegum sjúkrasjóða stéttarfélaganna og greiða kostnaðinn af störfum þeirra og
kostnaðinn af ráðgjöf fagaðila. Ennfremur mun Endurhæfingarsjóður hafa
fjármuni til þess að greiða fyrir kostnað við úrræði og endurhæfingu til
viðbótar því sem veitt er af hinni almennu heilbrigðisþjónustu.
Miðað er við að í heild verði ráðstafað 0,39% af launum til
Endurhæfingarsjóðs. Í fyrsta áfanga er samkomulag milli Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins um að leggja, í hverjum kjarasamningi fyrir
sig, sérstakt 0,13% launatengt gjald, endurhæfingargjald, á launagreiðendur á
sama gjaldstofn og iðgjald til lífeyrissjóða frá og með 1. júní 2008. Í öðrum
áfanga sem hefst í ársbyrjun 2009 er miðað við að ríkissjóður leggi
Endurhæfingarsjóði til sömu upphæð og launagreiðendur samkvæmt sérstöku
samkomulagi. Í þriðja áfanga sem hefst í ársbyrjun 2010 munu
Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins beita sér fyrir því að
lífeyrissjóðir á samningssviði þeirra greiði til Endurhæfingarsjóðs sama hlutfall
og launagreiðendur. Ennfremur munu Alþýðusamband Íslands og Samtök
atvinnulífsins leita leiða til þess að aðrir lífeyrissjóðir greiði til
Endurhæfingarsjóðs eftir því sem við á þannig að full framlög fáist til sjóðsins
vegna þeirra einstaklinga sem endurhæfingargjald er greitt af.
Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins eru sammála um að setja
Endurhæfingarsjóði 8 manna stjórn með 4 mönnum frá hvorum aðila.
Hlutverk stjórnarinnar er að móta og þróa starfsemi sjóðsins, gera samninga
um þjónustufulltrúa, við ráðgjafa og aðra aðila.
Greiðsluskylda launagreiðenda, sjúkrasjóða og lífeyrissjóða verður óbreytt en
Alþýðusamband Ísland og Samtök atvinnulífsins eru sammála um að breyta
1...,47,48,49,50,51,52,53,54,55,56 58,59,60,61,62,63,64,65,66,67,...71
Powered by FlippingBook