Félag Bókagerðamanna - page 62

62
Samningur SA og FBM
við að þróa þjónustu á þessu sviði í jákvæðan farveg þannig að hún skili
árangri fyrir starfsfólk og fyrirtæki.
Samningsaðilar munu skipa viðræðunefnd sem ætlað er að ná samkomulagi
um nánara fyrirkomulag varðandi tilkynningu veikinda til trúnaðarlæknis/
þjónustufyrirtækis á sviði vinnuverndar.
Viðræðunefndin skal í starfi sínu m.a. fjalla um eftirtalin atriði:
-
Þau skilyrði sem trúnaðarlæknir / þjónustufyrirtæki þarf að uppfylla.
-
Fyrirkomulag varðandi tilkynningu starfsmanna til þjónustufyrirtækis á
sviði vinnuverndar vegna veikinda- og slysaforfalla vilji atvinnurekandi
taka upp slíkt fyrirkomulag, enda komi slík tilkynning þá að öðru jöfnu í
stað framlagningar læknisvottorðs.
-
Trúnaðarskyldu og meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem
trúnaðarlæknir/þjónustufyrirtæki aflar með starfsemi sinni. Það á við
um söfnun, meðferð, vistun og eyðingu þessara upplýsinga.
-
Hvernig starfsemi trúnaðarlækna/þjónustufyrirtækja getur gagnast
vinnuverndarstarfi í fyrirtækjunum.
Viðræðunefndin mun í starfi sínu eiga samstarf við Persónuvernd, Landlækni,
Vinnueftirlit ríkisins og hagsmunaaðila.
Viðræðunefndin skal ljúka störfum eigi síðar en 30. nóvember 2008.
Samninganefndir ASÍ og SA skulu taka afstöðu til tillagna viðræðunefndarinnar
eigi síðar en 15. desember 2008.
Komist samningsaðilar að sameiginlegri niðurstöðu skal samningur þeirra teljast
hluti af kjarasamning aðildarsamtaka þeirra og taka gildi 1. janúar 2009.
Meðan á framangreindri vinnu stendur gera samningsaðilar ekki athugasemdir
við starfsemi þjónustufyrirtækja á sviði vinnuverndar sem fengið hafa
viðurkenningu Vinnueftirlits ríkisins sem þjónustuaðili á sviði vinnuverndar og
tilkynningarskyldu starfsmanna til þeirra.
1...,52,53,54,55,56,57,58,59,60,61 63,64,65,66,67,68,69,70,71
Powered by FlippingBook