Félag Bókagerðamanna - page 35

Samningur SA og FBM
35
7. KAFLI
Trúnaðarmenn
7.1.
Starfsmönnum er heimilt að kjósa einn trúnaðarmann á
hverjum vinnustað þar sem starfa 5 til 50 starfsmenn og tvo
trúnaðarmenn séu starfsmenn fleiri en 50. Að kosningu lokinni
tilnefnir stjórn FBM trúnaðarmennina. Verði kosningu eigi við
komið, skulu trúnaðarmenn tilnefndir af stjórn FBM. Trúnaðar-
menn verða eigi kosnir eða tilnefndir til lengri tíma en tveggja
ára í senn.
7.2.
Trúnaðarmönnum á vinnustöðum skal í samráði við verkstjóra
heimilt að verja eftir því sem þörf krefur tíma til starfa, sem
þeim kunna að vera falin af verkafólki á viðkomandi vinnustað
og/eða FBM vegna starfa þeirra sem trúnaðarmanna og skulu
laun þeirra ekki skerðast af þeim sökum.
7.3.
Trúnaðarmanni skal heimilt í sambandi við ágreiningsefni að
yfirfara gögn og vinnuskýrslur, sem ágreiningsefnið varðar.
Fara skal með slíkar upplýsingar sem trúnaðarmál.
7.4.
Trúnaðarmaður á vinnustað skal hafa aðgang að læstri hirslu
og aðgang að síma í samráði við verkstjóra.
7.5.
Trúnaðarmanni hjá hverju fyrirtæki skal heimilt að boða til
fundar með starfsfólki tvisvar sinnum á ári á vinnustað í
vinnutíma. Fundirnir hefjist einni klst. fyrir lok dagvinnutíma,
eftir því sem við verður komið.
Til fundanna skal boða í samráði við FBM og stjórnendur fyrir-
tækisins með 3ja daga fyrirvara, nema fundarefni sé mjög
brýnt og í beinum tengslum við vandamál á vinnustaðnum. Þá
nægir eins dags fyrirvari. Laun starfsfólks skerðast eigi af
þessum sökum fyrstu klst. fundartímans.
7.6.
Starfsfólk skal snúa sér til trúnaðarmanns með hvers konar
óskir eða kvartanir viðvíkjandi ófullnægjandi aðbúnaði við
vinnuna eða öðru, er það telur ábótavant.
Trúnaðarmaður skal bera slíkar óskir og kvartanir fram við
atvinnurekanda eða umboðsmann hans, áður en hann ber þær
fram á öðrum vettvangi.
Trúnaðarmenn skulu í engu gjalda þess, að þeir beri fram
kvartanir fyrir hönd starfsfólksins.
7.7.
Trúnaðarmönnum á vinnustað skal gefinn kostur á að sækja
námskeið sem miða að því að gera þá hæfari í starfi. Þeir, sem
námskeiðin sækja, skulu halda dagvinnutekjum í allt að eina
viku á ári, enda séu námskeiðin viðurkennd af fastanefnd aðila
vinnumarkaðarins. Þetta gildir þó aðeins fyrir einn trúnaðar-
mann frá hverju
fyrirtæki á ári.
1...,25,26,27,28,29,30,31,32,33,34 36,37,38,39,40,41,42,43,44,45,...71
Powered by FlippingBook