34
Samningur SA og FBM
6.8
Fæðingarorlof og mæðraskoðun
Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000
skal fæðingarorlof reiknast til starfstíma við mat á starfs-
tengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku og lengingar
orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækkana,
veikindaréttar og uppsagnarfrests. Sama gildir ef kona þarf að
öryggisásæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr.
reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á
vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið
barn eða hafa barn á brjósti
.
Fæðingarorlof telst til unnins tíma við útreikning orlofsréttar,
þ.e. réttar til frítöku en ekki orlofslauna.
Barnshafandi konur eiga rétt til nauðsynlegra fjarvista frá
vinnu vegna mæðraskoðunar án frádráttar á föstum launum
þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma.