Fréttir

Kaffi eldri félaga á miðvikudag

11 nóv. 2025
Kaffiboð fyrir eldra félagsfólk Fagfélaganna verður haldið næstkomandi miðvikudag, 12. nóvember, milli klukkan 13 og 15. Allt félagsfólk sem náð hefur lífeyrisaldri er velkomið. Að venju er gengið inn Grafarvogsmegin á Stórhöfða 29-31.

Opið fyrir umsóknir um leiguíbúðir

23 okt. 2025
Nýstofnað leigufélag Fagfélaganna hefur opnað fyrir umsóknir um 10 íbúðir í langtímaleigu fyrir félagsfólk RSÍ, VM og MATVÍS. Íbúðirnar eru í nýju og glæsilegu fjölbýlishúsi við Eirhöfða 7 í Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna hér í frétt á heimasíðu okkar rafis.is. Sjá hér: https://rafis.is/2025/10/21/opid-fyrir-umsoknir-um-nyjar-leiguibudir/  

Fag­félögin halda upp á baráttu­daginn 24. október

21 okt. 2025
Við fögnum Kvennaári 24. október 2025 um allt land og hvetjum allt félagsfólk RSÍ, MATVÍS, VM og Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) til að taka þátt í Kvennaári með myndarlegum hætti undir merkjum Fagfélaganna. Á baráttudeginum 24. október, frá 10:00 – 14:00, mun Alþýðusambandið að halda málþing um konur af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði. Málþingið verður […]

Kaffi eldri félaga 8. október

6 okt. 2025
Sameiginlegt kaffi eldri félaga innan Fagfélaganna verður 8. október nk. Viðburðurinn stendur yfir á milli kl. 13.00 og 15.00 á Stórhöfða 31. Athugið að gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin.

Kennari í bókbandi

1 okt. 2025
Tækniskólinn leitar eftir kennara í bókband. Hlutastarf frá og með 2. janúar 2026   Sjá nánar hér atvinnuauglýsingu á alfred.is https://www.alfred.is

Þjóð gegn þjóðarmorði

3 sep. 2025
RSÍ er í hópi tuga samtaka og félaga sem standa fyrir fimm baráttufundum undir heitinu Þjóð gegn þjóðarmorði næstkomandi laugardag. Þar verður yfirstandandi þjóðarmorði Ísrael gegn palestínsku þjóðinni mótmælt. Fundirnir hefjast klukkan tvö á laugardag og verða haldnir á Austurvelli í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði, Egilsstöðum og í Stykkishólmi. „Við höfnum þjóðarmorði og brotum Ísraels á alþjóðalögum. Tími yfirlýsinga og […]

Kaffi eldri félaga 10. september

3 sep. 2025
Sameiginlegt kaffi eldri félaga innan Fagfélaganna verður 10. september nk. Viðburðurinn stendur yfir á milli kl. 13.00 og 15.00 á Stórhöfða 31. Athugið að gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin.  

Lokun skrifstofu

16 júl. 2025
Skrifstofa Fagfélaganna verður lokuð frá 21. júlí til 1. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Við opnum aftur þriðjudaginn 5. ágúst. Kjaramál: Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst til kjaramal@fagfelogin.is sé um kjaramál að ræða. Orlofshús: Ef um er að ræða brýna aðstoð vegna orlofshúsa má senda tölvupóst til orlofsmal@fagfelogin.is. Varðandi almennar fyrirspurnir vekjum við athygli á þeim […]

Iðan fræðslusetur auglýsir eftir Fræðslufulltrúa

25 jún. 2025
Hér má finna hlekk á auglýsinguna um starfið. https://www.hagvangur.is/jobs/fraedslufulltrui-idan-fraedslusetur/

Iðan fræðslusetur auglýsir eftir Markaðs- og sölustjóra

25 jún. 2025
Hér má finna hlekk á auglýsinguna um starfið sem birtist hjá Hagvangi https://www.hagvangur.is/jobs/markads-og-solustjori-idan-fraedslusetur/  

Póstlisti