Catégorie: Óflokkað

Ferðaávísanir – NÝTT

22. júlí, 2020

Óflokkað

Félagsmönnum stendur nú til boða að kaupa ferðaávísun sem tryggir gistingu á góðu verði í sumar, í samstarfi við íslensk hótel og gistiheimili. Á  orlofsvefnum,orlof.is/rafis(smella hér) er að finna upplýsingar um tilboð á mörgum af betri hótelum og gistiheimilum landsins. Kauptu ferðaávísun og njóttu Íslands á sérkjörum Við niðurgreiðum gistinuna um 20% af valinni upphæð […]

G-gata

Óflokkað

Sumarhús til sölu í Miðdal  

Sumarlokun skrifstofu Rafiðnaðarsambands Íslands 20.-31. júlí

Óflokkað

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Rafiðnaðarsambands Íslands lokuð frá frá 20. júlí til og með 31. júlí. Skrifstofan opnar kl 8:00 þriðjudaginn 4. ágúst. Vegna mála sem þola ekki bið er hægt að hafa samband við Sigrúnu Sigurðardóttur í síma 540-0122.   Styrkir verða greiddir úr fimmtudaginn 16. júlí. Styrkumsóknir sem berast eftir 12. júlí greiðast út 31. ágúst.

Kjarakönnun apríl 2020

30. júní, 2020

Óflokkað

Hér má sjá kjarakönnun Grafíu og samtaka iðnaðarins sem framkvæmd var í mars – apríl 2020 með það að markmiði að kanna laun og starfskjör félagsmanna í GRAFÍU. Kjarakönnun 2020

TJALDSVÆÐI Á SKÓGARNESI OG Í MIÐDAL SUMARIÐ 2020

26. maí, 2020

Óflokkað

Tjaldsvæði á Skógarnesi og í Miðdal verða opnuð föstudaginn 29. maí 2020 Aðgengi að tjaldsvæðum RSÍ er með breyttu sniði í sumar vegna Covid-19. Settar hafa verið reglur um fjarlægðir á milli eininga og hafa svæðin verið stúkuð í samræmi við þær reglur. Fjórir metrar eiga að vera á milli eininga (hver eining er hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagn […]

Ávörp forseta ASÍ og Alþjóðasambands verkalýðsfélaga á 1. maí

1. maí, 2020

Óflokkað

GRAFÍA óskar félagsmönnum og landsmönnum öllum gleðilegan 1. maí og hvetur til samstöðu launafólks!   Fyrsta maí ávarp forseta ASÍ Byggjum réttlátt þjóðfélag Kæru félagar og landsmenn allir Um heim allan hefur flestu sem við höfum tekið sem gefnu verið ýtt til hliðar til að verja líf okkar og heilsu. Vinna, nám, félagslíf og samskipti […]

Tjaldsvæði RSÍ á Skógarnesi og í Miðdal

29. apríl, 2020

Óflokkað

Tjaldsvæði RSÍ á Skógarnesi og í Miðdal verður ekki opnað í maí eins og staðan er í dag nema skýr tilmæli þess eðlis komi frá sóttvarnarlækni. Við munum að sjálfsögðu fylgjast vel með og opna svæðin eins fljótt og mögulegt er. Það þarf einnig að taka tillit til svæðisins en frost er ekki farið úr […]

Kauptaxti 1. apríl 2020

27. apríl, 2020

Óflokkað

Hér má sjá kauptaxta frá 1. apríl 2020. Grafia kauptaxtar 1. apríl 2020

Aðalfundi GRAFÍU frestað

15. apríl, 2020

Óflokkað

Aðalfundi GRAFÍU, sem vera átti mánudaginn 20. apríl n.k. er frestað um óákveðinn tíma eða þar til samkomubanni lýkur. Fundurinn verður boðaður þegar dagsetning liggur fyrir. Reykjavík, 15. apríl 2020 Stjórn GRAFÍU stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum

Tímabundin lokun á umsóknir um endurfjármögnun hjá Birtu

3. apríl, 2020

Óflokkað

Við viljum vekja athygli á frétt á heimasíðu sjóðsins vegna lokunar á umsóknir um endurfjármögnun lána hjá Birtu. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða vegna álags er fylgir greiðsluerfiðleikaúrræðum ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 faraldurs. Sjóðfélagar eru beðnir um að sýna biðlund, tilkynnt verður á heimasíður sjóðsins þegar opnað verður aftur fyrir umsóknir um endurfjármagnanir. Áfram verður […]

Póstlisti