Félag Bókagerðamanna - page 14

14
Samningur SA og FBM
Upplýsingar samkvæmt 6. - 9. tl. má gefa með tilvísun til
kjarasamninga.
1.9.5.
Störf erlendis - Sé starfsmanni falið að starfa í öðru landi í einn
mánuð eða lengur skal hann fá skriflega staðfestingu
ráðningar fyrir brottför. Auk upplýsinga skv. gr. 1.9.4. skal
eftirfarandi koma fram:
1. Áætlaður starfstími erlendis.
2. Í hvaða gjaldmiðli laun eru greidd.
3. Uppbætur eða hlunnindi sem tengjast starfi erlendis.
4. Eftir atvikum skilyrði þess að starfsmaður geti snúið aftur
til heimalandsins.
Upplýsingar skv. 2. og 3. tl. má gefa með tilvísun til laga eða
kjarasamninga.
1.9.6.
Tímabundnar ráðningar
Um tímabundnar ráðningar fer skv. lögun nr. 139/2003 um
tímabundna ráðningu starfsmanna.
1.10. Starfsmannaviðtöl
Starfsmaður á rétt á viðtali við yfirmann einu sinni á ári um
störf sín, þ.m.t. frammistöðu og markmið og hugsanlegar
breytingar á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali skal
það veitt innan tveggja mánaða og liggi niðurstaða þess fyrir
innan mánaðar.
1.11. Samkeppnisákvæði
Ákvæði í ráðningarsamningum sem banna starfsmönnum að
ráða sig til starfa hjá samkeppnisaðilum vinnuveitenda eru
óskuldbindandi séu þau víðtækari en nauðsynlegt er til að
varna samkeppni eða skerða með ósanngjörnum hætti
atvinnufrelsi starfsmannsins. Hvort svo er verður að meta í
hverju einstöku tilviki að teknu tilliti til allra atvika.
Samkeppnisákvæði mega því ekki vera of almennt orðuð.
Við mat á því hversu víðtækt samkeppnisákvæði í ráðningar-
samningi má vera, einkum hvað varðar gildissvið og
tímamörk, þarf að horfa til eftirfarandi þátta:
a. Hvers konar starfi viðkomandi starfsmaður gegnir, t.d.
hvort hann er lykilstarfsmaður, er í beinu sambandi við
viðskiptamenn eða ber ríka trúnaðarskyldu. Einnig hvaða
vitneskju eða upplýsingar starfsmaðurinn kann að hafa
um starfsemi fyrirtækisins eða viðskiptamenn þess.
b. Hversu hratt þekking starfsmannsins úreldist og hvort
gætt sé eðlilegs jafnræðis milli starfsmanna.
1...,4,5,6,7,8,9,10,11,12,13 15,16,17,18,19,20,21,22,23,24,...71
Powered by FlippingBook