Félag Bókagerðamanna - page 13

Samningur SA og FBM
13
Það telst vanræksla á vinnu, ef starfsmaður er ekki kominn að
verki, þegar stundaklukka þeirrar vinnustofu, er hann vinnur í,
er á mínútunni (slær).
1.8.
Útkall
Sé starfsmaður kallaður til vinnu frá heimili sínu eftir að
venjulegum dagvinnutíma er lokið, greiðist honum 1 klst. auk
þess tíma sem unninn er, þó aldrei skemur en 3 klst.
1.9.
Ráðningarsamningar, ráðningarbréf
1.9.1.
Sé starfsmaður ráðinn til lengri tíma en eins mánaðar og að
meðaltali lengur en átta klst. á viku, skal eigi síðar en tveim
mánuðum eftir að starf hefst gerður skriflegur ráðningar-
samningur eða ráðning staðfest skriflega. Láti starfsmaður af
störfum áður en tveggja mánaða frestinum lýkur, án þess að
skriflegur ráðningarsamningur hafi verið gerður eða ráðning
staðfest skriflega, skal slík staðfesting látin í té við starfslok.
1.9.2.
Breytingar á ráðningarkjörum umfram það sem leiðir af lögum
eða kjarasamningum skal staðfesta með sama hætti eigi síðar
en mánuði eftir að þær koma til framkvæmda.
1.9.3.
Ákvæði gr. 1.9.1. og 1.9.2. gilda ekki við ráðningu í tilfallandi
störf, að því tilskildu að hlutlægar ástæður liggi því til
grundvallar.
1.9.4.
Upplýsingaskylda vinnuveitanda - Í ráðningarsamningi eða
skriflegri staðfestingu ráðningar, þ.e. ráðningarbréfi, skal
a.m.k. eftirfarandi koma fram:
1.
Deili á aðilum þ.m.t. kennitölur.
2.
Vinnustaður og heimilisfang vinnuveitanda. Sé ekki um
fastan vinnustað að ræða, eða stað þar sem vinnan fer
jafnaðarlega fram, skal koma fram að starfsmaður sé
ráðinn á mismunandi vinnustöðum.
3.
Titill, staða, eðli eða tegund starfs sem starfsmaður er
ráðinn í eða stutt útlistun eða lýsing á starfinu.
4.
Fyrsti starfsdagur.
5.
Lengd ráðningar sé hún tímabundin.
6.
Orlofsréttur.
7.
Uppsagnarfrestur af hálfu vinnuveitanda og starfsmanns.
8.
Mánaðar- eða vikulaun, t.d. með tilvísun til launataxta,
mánaðarlaun sem yfirvinna er reiknuð af, aðrar greiðslur
eða hlunnindi svo og greiðslutímabil.
9.
Lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku.
10.
Lífeyrissjóður.
11.
Tilvísun til gildandi kjarasamnings og hlutaðeigandi
stéttarfélags.
1...,3,4,5,6,7,8,9,10,11,12 14,15,16,17,18,19,20,21,22,23,...71
Powered by FlippingBook