Fréttir

Viðræðuslit í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins

6 maí. 2015

Fréttatilkynning frá

Rafiðnaðarsambandi Íslands, MATVÍS, Samiðn,   Grafíu – stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum/FBM,  Félagi hársnyrtisveina og  Félagi vélstjóra og málmtæknimanna

Fulltrúar ofangreindra stéttarfélaga og sambanda hafa á undanförnum vikum átt í viðræðum við SA um endurnýjun kjarasamninga.   Á fundi viðræðunefndar með fulltrúum SA  í dag  var niðurstaðan að það hefði ekki tilgang að halda viðræðum áfram vegna árangursleysis og mikils ágreinings um launalið samninga

Viðræðunefndin beinir því til stéttarfélaganna að þau hefji nú þegar undirbúning að atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um verkfallsheimild.

Reykjavík, 5. maí 2015

Kristján Snæbjarnarson formaður RSÍ

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar

Guðmundur Ragnarsson, formaður VM

Til baka

Póstlisti