Fréttir

Verkfallsstyrkir – upplýsingar og reglur

19 maí. 2015

Starfsreglur vinnudeilusjóðs Grafíu/FBM

vegna tímabundins verkfalls í júní

  • Samkvæmt reglum Styrktar- og tryggingasjóðs Grafíu/FBM skal greitt kr. 150.000 á mánuði, sem er 6.922 fyrir hvern verkfallsdag.
  • Rétt til verkfallsbóta eiga allir félagsmenn sem eru á kjörskrá og verða fyrir launatapi vegna vinnustöðvunar eða verkbanns.
  • Heimilt er félagsmönnum að sækja um styrk úr sjóðnum, sækja þarf um á þar til gerðu rafrænu eyðublaði á vef félagsins, styrkir verða greiddir í upphafi júlímánaðar.
  • Að öðru leyti er vísað í reglugerð Styrktar- og tryggingasjóðs.

vegna ótímabundins verkfalls í ágúst

  • Samkvæmt reglum Styrktar- og tryggingasjóðs Grafíu/FBM skal greitt kr. 150.000 á mánuði, sem er 6.922 fyrir hvern verkfallsdag.
  • Heimilt er félagsmönnum að sækja um styrk úr sjóðnum, er vinnustöðvun eða verkbann hefur staðið yfir í 8 daga.
  • Rétt til verkfalsbóta eiga allir félagsmenn sem eru á kjörskrá og verða fyrir launatapi vegna vinnustöðvunar eða verkbanns.
  • Eingöngu verður úthlutað fyrir viku í senn samkvæmt umsókn á þar til gerðu rafrænu eyðublaði á vef félagsins. 
  • Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að úthluta úr sjóðnum í sérstökum tilvikum í og eftir að verkfalli er lokið. Stjórn sjóðsins hefur heimild til þess að ákvarða upphæð styrkja hverju sinni eftir stöðu sjóðsins.
  • Að öðru leyti er vísað í reglugerð Styrktar- og tryggingasjóðs.

 

Til baka

Póstlisti