Fréttir

Verkfalli frestað til kl. 24.00, mánudaginn 22. júní n.k.

9 jún. 2015

Fréttatilkynning Samiðnar, Grafíu/FBM og Félags hársnyrtisveina vegna frestunar verkfalla

Síðustu daga hafa staðið yfir viðræður milli Samiðnar, MATVÍS, RSÍ, VM, Grafíu/FBM og Félag hársnyrtisveina við SA um endurnýjun kjarasamninga.

Samiðn, Grafía/FBM, Félag hársnyrtisveina og SA hafa orðið sammála um að stefna að því að ljúka samningum fyrir 12. júní n.k. náist samkomulag um sérkröfur fyrir þann tíma.

Samninganefndir þessara félaga og sambanda og SA hafa orðið sammála um að fresta boðuðum verkföllum sem hefjast áttu 10. júní til kl. 24, mánudaginn 22. júní.

Verkfall hefst því kl. 00 þriðjudaginn 23. júní náist samingar ekki fyrir þann tíma.

Reykjavík, 6. júní 2015

Samninganefndir

Samiðnar

Grafíu/FBM stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum

Félags hársnyrtisveina

Til baka

Póstlisti