Fréttir

Þróunarverkefnið Virkur vinnustaður formlega hafið

1 nóv. 2011

VIRK endurhæfingarsjóður hefur sett af stað verkefnið Virkur vinnustaður.  Verkefnið er til þriggja ára og taka 12 fyrirtæki/stofnanir þátt, en undir þau tilheyra samtals 35 vinnustaðir með tæplega 1600 starfsmönnum. Stjórn VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs ákvað að setja þróunarverkefnið á laggirnar í kjölfar vinnustofu í ársbyrjun 2011 þar sem samankomnir voru fulltrúar atvinnurekenda, stéttarfélaga og starfsmanna VIRK. Tilgangur verkefnisins er að veita stjórnendum og starfsmönnum fræðslu og ráðgjöf við að móta og innleiða stefnu um velferð, fjarvistir og endurkomu til vinnu. Áhersla er lögð á jákvæða og heilsusamlega nálgun. Sjá nánar um verkefnið hér

Til baka

Póstlisti