Fréttir

Sumarúthlutun 2014- síðasti dagur til að sækja um

14 apr. 2014

Síðasti dagur til að sækja um orlofshús í sumarúthlutun er í dag 14. apríl Opið er  fyrir umsóknir á orlofsvef félagsins www.orlof.is/fbm
Umsóknarfrestur er til 14. apríl.

Aðeins virkir félagsmenn FBM hafa aðgang að orlofssíðunni,  www.orlof.is/fbm, kennitala félagsmannsins er notendanafn og við fyrstu innskráningu á síðuna þá velur félagsmaðurinn sér lykilorð.

Þeir félagsmenn sem þess óska geta fyllt út umsóknareyðublað á pappír á skrifstofu félagsins í dag til kl. 16.00

Úthlutunarreglur vegna orlofshúsanna
Úthlutunarkerfið er einfalt, farið er eftir punktainneign félagsmanna. Félagsmenn fá einn punkt fyrir hvern mánuð sem þeir hafa greitt félagsgjald. Sá sem hefur flesta punkta þeirra sem sækja um sama svæðið og sama tíma fær úthlutað. Ef aðilar eru jafnir að punktum fær sá úthlutað er fyrr gekk í félagið. Þeir sem fá úthlutað orlofshúsi á tímabilinu júní til ágúst ár hvert missa 24 eða 36 punkta við úthlutun.

Aðeins er hægt að senda inn eina umsókn með allt að 10 valmöguleikum.

Sjá nánar á orlofsvef félagsins hér.

Til baka

Póstlisti