Fréttir

Sumarúthlutun 2013 lokið

23 apr. 2013

Sumarúthlutun orlofshúsa fyrir sumarið 2013 fór fram 23. apríl. Alls bárust  166 umsóknir, 74 félagsmenn fengu úthlutað orlofshúsi eða orlofsíbúð. 92 fengu ekki ósk sína uppfyllta. Þeir sem að fengu úthlutað hafa frest til 3. maí til að ganga frá greiðslu. Þann 6. maí kl.13 verður opnað fyrir leigu á orlofsvef félagsins á þeim húsum sem eru vangreidd 3. maí. Þá gildir fyrstur kemur fyrstur fær.
Langmest var ásókn í hús 1, 2 og 7  í Miðdal  t.d. sóttu 106 félagsmenn um vikuna 2. ágúst – 9. ágúst
 
Athygli er vakin á því að hús  6 í Miðdal og íbúðin í Ljósheimum í Reykjavík. eru ekki í sumarúthlutun og er hægt að bóka þau beint í gegnum orlofsvef félagsins. Félagsmenn missa aðeins 2 punkta við leigu á þessum húsum.
sjá orlofsvef félagsins hér

Til baka

Póstlisti