Fréttir

Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar vorið 2012

16 jan. 2012

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsækjendur skulu uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og leggja fram áætlun um vinnustaðanámið og fyrirsjáanlega framvindu þess.

Styrkir geta numið allt að 20 þús. kr. á viku og eru veittir til 24 vikna að hámarki. Styrkur er greiddur eftir því sem námi vindur fram.
Umsóknum er skilað á sérstöku eyðublaði sem er að finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Umsókn skal fylgja yfirlit um framvindu vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti á olafur.g.kristjansson@mrn.is

Umsóknarfrestur er til  1. febrúar 2012.

Til baka

Póstlisti