Fréttir

Siggi Eggertsson grafískur hönnuður verðlaunaður

24 okt. 2009

siggie

Siggi hefur verið sérstaklega afkastamikill í starfi og hefur verið lýst í alþjóðlegum fagtímaritum sem upprennandi sjörnu myndskreytinga með sinn einstaka stíl. Hann hefur starfað fyrir fjöldamörg innlend sem alþjóðleg fyrirtæki s.s.12 Tóna, Listahátíðina Sequences, Coca Cola, H&M Divided, Nike, Wallpaper, Stussy, Wired Magazine o.fl. o.fl. auk þess sem að verk eftir Sigga hafa birst í fjölmörgum blöðum og tímaritum innlendum sem erlendum.

Siggi var tilnefndur til Sjónlistaverðlaunanna 2008.

Sýning á verkum þeirra sem tóku þátt í samkeppni ADC Young Guns opnaði í New York í gær 22. október og stendur til 6. nóvember nk. í ADC gallery í New York.

Hér má finna nánari upplýsingar um verðlaunin : http://www.adcyoungguns.org/winners/

Hér má sjá vefsíðu Sigga Eggertssonar http://www.vanillusaft.com/

Til baka

Póstlisti