Fréttir

Samninganefnd FBM samþykkir drög að samkomulagi

17 jan. 2013

Á fundi stjórnar, trúnaðarráðs og trúnaðarmanna FBM miðvikudaginn 16. janúar var fjallað um drög að því samkomulagi ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins sem nú liggur fyrir. Það var niðurstaða fundarins að samþykkja samkomulagið sem gerir ráð fyrir styttingu samningstímans til 30. nóvember 2013, hækkun iðgjalda um 0,1% til fræðslumála auk fleiri þátta. Með þessu móti koma umsamdar launahækkanir til framkvæmda 1. febrúar næstkomandi en samkvæmt kjarasamningum hækka laun þá um 3,25% og lágmarks kauptaxtar um 11.000 krónur

Til baka

Póstlisti