Fréttir

Orlofsuppbót 2015

25 maí. 2015

Samkvæmt kjarasamningi FBM-SA og FGT-SÍA kemur til greiðslu orlofsuppbótar 1. júní næst komandi. Upphæðin skal vera 39.500 kr. til þeirra sem unnið hafa fullt starf 01.05 2014-30.04 2015. Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma.

Sumarleyfi samkvæmt kjarasamningi FBM-SA
Starfsfólk skal fá 25 virka daga í sumarleyfi með fullu kaupi, enda hafi það unnið í sama fyrirtæki í eitt ár samfl eytt.
Eftir 5 ár samfellt í sama fyrirtæki 28 dagar
Eftir 10 ár í iðninni 30 dagar
Starfsfólk, sem unnið hefur skemur en eitt ár í sama fyrirtæki, skal fá sumarleyfi með fullu kaupi að tiltölu við þann tíma, sem það hefur unnið.

 

Vetrarorlof

Óski starfsmaður með 9 ára starfsreynslu að taka vetrarorlof, þá geymast 5 dagar af sumarorlofi og verður þá vetrarorlof samtals 10 dagar. Óski starfsmaður með 10 ára starfsreynslu eða meira að taka vetrarorlof þá geymast 5 dagar af sumarorlofi og verður þá vetrarorlof samtals 10 dagar. Vetrarorlof skal veitt á tímabilinu 1. október til 1. maí. Vetrarorlof skal starfsmaður nota til að auka þekkingu sína.Ósk um töku vetrarorlofs skal koma fram fyrir 1. maí ár hvert

 

Sumarleyfi samkvæmt kjarasamningi FGT- SÍA

Orlofsréttur þeirra sem eru með 1-3 ára starfsaldur er 24 dagar
4 ára starfsaldur 26 dagar 9 ára starfsaldur 28 dagar
6 ára starfsaldur 27 dagar 12 ára starfsaldur 29 dagar
Eftir 5 ár í sama fyrirtæki 28 dagar Eftir 10 ár í sama fyrirtæki 30 dagar
Starfsfólk, sem unnið hefur skemur en eitt ár í sama fyrirtæki, skal fá
sumarleyfi með fullu kaupi að tiltölu við þann tíma, sem það hefur unnið.

Til baka

Póstlisti