Orlofsuppbót 2010 ber að greiða 1. júní
23 apr. 2010
Orlofsuppbót 2010 ber að greiða 1. júní næstkomandi. Uppbótin greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1. maí.
Iðnnemar sem að eru í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma eiga að fá fulla orlofsuppbót.
Orlofsuppbót 2010 er 25.800 kr.