Fréttir

Opnun sýningarinnar Þetta vilja börnin sjá!

21 jan. 2014

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Þetta vilja börnin sjá!
og afhendingu Dimmalimm verðlaunanna sunnudaginn 26. janúar kl. 14.

Börn eru sérstaklega velkomin.

Þetta vilja börnin sjá! er sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnabókum og hefur slík sýning verið haldin árlega í Gerðubergi frá árinu 2002. Markmið sýningarinnar er að beina athyglinni að gildi myndskreytinga í barnabókum. Þátttakendur keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Sjá nánar hér. Verðlaununum er ætlað að hvetja bæði útgefendur og höfunda texta og mynda til frekari dáða. Dómnefnd velur eina bók og verða úrslitin kunngerð í Gerðubergi við opnun sýningarinnar, 26. janúar.

Sýningin er farandsýning og hefur hún verið sett upp víða um land síðustu ár. Áhugasömum sýningaraðilum er bent á að hafa samband við verkefnisstjóra listadeildar í Gerðubergi.

Þátttakendur í sýningunni í ár eru:

Auður Þórhallsdóttir, Bernd Ogrodnik, Björk Bjarkadóttir, Bojan Radovanovic, Dagný Reykjalín, Elsa Nielsen, Erla María Árnadóttir, Freydís Kristjánsdóttir, Guðrún Hilmisdóttir, Halla Sigríður Haugen, Íris Jónsdóttir, Jenny Rojas, Katrín Óskarsdóttir, Kristín Arngrímsdóttir, Kristín María Ingimarsdóttir, Lani Yamamoto, Linda Ólafsdóttir, Lóa H. Hjálmtýsdóttir, Madmax, Pétur Guðmundsson, Rosaria Battiloro, Sigrún Eldjárn, Sigrún Erla Karlsdóttir, Stephen Fairbairn, Vladimiro Rikowski, Þórir Karl Celin.

Til baka

Póstlisti