Opnun styrkumsókna Myndstefs
28 jún. 2018
Athygli er vakin á því að Myndstef hefur nú opnað fyrir styrkumsóknir
til samtakanna ásamt með for-opnun nýrrar heimasíðu.
Helstu upplýsingar styrkja Myndstefs 2018:
Verkefnastyrkir
Rétt til að sækja um verkefnastyrki hafa þeir myndhöfundar sem eru aðilar í Myndstefi og aðrir starfandi myndhöfundar.
Ferða-og menntunarstyrkir
Rétt til að sækja um ferða- og menntunarstyrk hafa þeir myndhöfundar sem hafa verið félagsmenn í Myndstefi í a.m.k. eitt ár.
Opið er fyrir styrkumsóknir 2018 frá 21. júní til kl 23:59 mánudaginn 3. september.
Styrkupphæðir árið 2018 eru:
Verkefnastyrkir 400.000 kr hámark
Ferða-og menntunarstyrkir 150.000 kr hámark
Frekari upplýsingar og úthlutunarreglur má nálgast hér: https://myndstef.is/hofundar/styrkir/reglur/
Upplýsingar um Myndstef má finna á heimasíðunni: https://myndstef.is/um-myndstef/