Opið hús laugardaginn 6. nóvember
5 nóv. 2010
Í tilefni af 30 ára afmæli Félags bókagerðarmanna þriðjudaginn 2. nóvember 2010,
verður opið hús á Hverfisgötu 21,
laugardaginn 6. nóvember nk., kl. 16:00-18:00.
Ari Eldjárn verður með uppistand, Jakob Viðar Guðmundsson sér um tónlistarflutning og sýning verður á gripum í eigu félagsins.
Boðið verður upp á veitingar.
Félagsmenn eru hvattir til að láta sjá sig.
Stjórnin