Fréttir

Nýr þjónustusamningur IÐUNNAR og menntamálaráðuneytsins

4 feb. 2011

Þann 28. janúar s.l. undirrituðu Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri IÐUNNAR nýjan þjónustusamning milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og IÐUNNAR fræðsluseturs. Samningurinn tekur til umsýslu sveinsprófa, umsýslu, skráningar og eftirlits með samningum um vinnustaðanám auk framkvæmdar annarra lokaprófa svo sem fagprófa í iðngreinum.
Samningurinn nær til bíliðngreina, byggginga- og mannvirkjagreina, hönnunar- og handverksgreina, matvæla- og veitingagreina, málm- og véltæknigreina, snyrtigreina og upplýsinga- og fjölmiðlagreina.
Þjónustusamningur gildir frá 1. janúar 2011 til ársloka 2013.

 

Katrinundirritun2810111_copy

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri IÐUNNAR við undirritun samningsins

Til baka

Póstlisti