Fréttir

Morgunverðarfundur – Áreitni á vinnustöðum, NEI TAKK!

9 jan. 2018

Fundurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi þess að efla forvarnir á sviði vinnuverndar með sérstaka áherslu á

einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Fundurinn er haldinn að frumkvæði stjórnar

Vinnueftirlits ríkisins þar sem sæti eiga fulltrúar stærstu samtaka aðila vinnumarkaðarins auk fulltrúa ráðherra.

Í lok fundar verður borin upp viljayfirlýsing og hún undirrituð af stjórnvöldum, aðilum vinnumarkaðarins, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum.

Einnig verður hægt að undirrita yfirlýsinguna rafrænt á vef Vinnueftirlitsins að fundi loknum.

Staðsetning:

Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík – Salur: Gullteigur

Dagskrá:

  • 08:00 Kaffiveitingar
  • 08:30 Setning, Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins
  • 08.40 Ávarp forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir
  • Innlegg frá aðilum vinnumarkaðarins:
    • 08:50 BSRB – Elín Björg Jónsdóttir
    • 09:00 Gallup – Tölur um kynferðislega áreitni á vinnumarkaði
    • 09:10 Fjármála- og efnahagsráðuneyti
    • 09:20 Alþýðusamband Íslands – Gylfi Arnbjörnsson
    • 09:30 BHM – Þórunn Sveinbjarnardóttir
    • 09:40 Samtök atvinnulífsins – Hilmar Sigurðsson, Sagafilm
    • 09:50 Samband íslenskra sveitarfélaga – Hildur J. Gísladóttir
  • 10:00 Ávarp og lokaorð félags- og jafnréttismálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason
  • 10.10 Undirskrift viljayfirlýsingar

Fundarstjóri: Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins

Til baka

Póstlisti