Fréttir

MIÐDALSMÓTIÐ – 2011 Páll Arnar Erlingsson Meistari FBM.

8 ágú. 2011

Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal     6. ágúst. Þetta var í sextánda sinn sem mótið er haldið í Miðdal.
39 þátttakendur mættu til leiks í blíðskaparveðri.

a_vefinn_golf2011

Verðlaunahafar f.v. Hrefna Óskarsdóttir, Ólafur Bergmann Bjarnason, Sigrún Sæmundsdóttir, Sigurlaug Björk Guðmundsdóttir, Theodór J. Guðmundsson, Rudolf Nielsen, Erling Þór Jónsson og Páll Erlingsson.

 

Keppt var skv. punktakerfi með forgjöf í karla- og kvennaflokki. Einnig var keppt í  höggleik án forgjafar um Postillonbikarinn. Eftir kaffiveitingar var keppendum raðað á teiga og hófst mótið kl. 11.00 undir stjórn  Eiríks Þorlákssonar og Georgs Páls Skúlasonar. Allir þátttakendur fengu afhenta teiggjöf sem var gjafabréf í Fontana, Gufubaðið á Laugarvatni.
Hvítlist var aðalstuðningsaðili mótsins sem og undanfarin ár en Fontana, nýopnað gufubað á Laugarvatni gaf verðlaun og teiggjöf til keppenda. Færum við stuðningsaðilum bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Fyrstu verðlaun með forgjöf hlaut Páll Arnar Erlingsson með 39 punkta, í öðru sæti varð Rudolf Nielsen með 35 punkta og í þriðja sæti varð Ólafur Bergmann Bjarnason einnig með 35 punkta en Rudolf hlaut fleiri punkta á seinni hring.
Postillon  bikarinn, fyrstu verðlaun án forgjafar vann Páll Arnar Erlingsson á 75 höggum, í öðru sæti varð Theodór J. Guðmundsson á 84 höggum og í þriðja sæti varð Erling Þór Jónsson á 86 höggum.
Sigurlaug Björk Guðmundsdóttir sigraði í kvennaflokki með 27 punkta, í öðru sæti varð Hrefna Óskarsdóttir með 15 punkta og í þriðja sæti varð Sigrún Sæmundsdóttir með 12 punkta.
Púttmeistari varð Arnar Olsen Richardsson með 28 pútt.
Lengsta teighögg karla á þriðju braut átti Páll Arnar Erlingsson.
Lengsta teighögg kvenna á þriðju braut átti Sigurlaug Björk Guðmundsdóttir.
Næst holu á 5./14. braut var Páll Arnar Erlingsson, 5,94 m.
Næst holu á 8./17. braut var Haraldur Jónsson, 5,76 m.
Auk þess var dregið úr skorkortum. Í mótslok, var boðið var upp á léttar veitingar sem þátttakendur tóku hraustlega við eftir frábæran og skemmtilegan keppnisdag.
Næsta Miðdalsmót verður í ágúst 2012.

 

Til baka

Póstlisti