Fréttir

Launakönnun RSÍ – félagar GRAFÍU taka þátt í sameiginlegri könnun

15 okt. 2021

Launakönnun RSÍ stendur yfir

launakannanir GRAFÍU og RSÍ eru unnar sameiginlega, því hvetjum við alla félaga GRAFÍU að taka þátt. Mögulegt er að taka þátt í gegnum tengil sem sendur hefur verið út til félagsmanna eða með því að fara inná „Mínar síður“ hér á www.rafis.is 

Nýr möguleiki til að fylgjast með markaðslaunum er í sérstökum hnapp á vef RSÍ www.rafis.is

Nú leitum við til ykkar kæru félagar! Árleg launakönnun er að hefjast en hún er líkt og síðustu ár framkvæmd af Gallup. Niðurstöður launakönnunar eru ópersónugreinanlegar.  Þær upplýsingar eru mjög mikilvægar fyrir félagsfólk í aðildarfélögum RSÍ enda veitir könnunin mikilvægar upplýsingar fyrir okkur öll til að sjá hver markaðslaun eru og hvar þið standið í dagvinnulaunum eða öðrum kjörum. Niðurstöður verða meðal annars aðgengilegar í launamælaborði RSÍ, „Markaðslaunum“, á heimasíðunni.

Við hvetjum ykkur til þess að fylgjast vel með skilaboðum frá Gallup þar sem aðgengi er veitt að könnuninni. Jafnframt er mögulegt að fara inn á „Mínar síður“ hér á www.rafis.is og taka þátt í gegnum þær þegar launakönnun er byrjuð.

Til baka

Póstlisti