Fréttir

Launahækkanir 1. júní 2010 og orlofsuppbót

14 maí. 2010

Launahækkanir 1. júní 2010.
Samkvæmt kjarasamningum Félags bókagerðarmanna og Samtaka atvinnulífsins og Félags grafískra teiknara og Samtaka íslenskra auglýsingastofa þá kemur
2,5% almenn launahækkun til framkvæmda 1. júní 2010. Einnig koma til hækkanir á kauptöxtum sem gefnir verða út sérstaklega.

Orlofsuppbót.
Samkvæmt kjarasamningi FBM-SA kemur til greiðslu orlofsuppbótar 1. júní næst
komandi. Upphæðin skal vera 25.800 kr. til þeirra sem unnið hafa fullt starf
01.05 2009-30.04 2010. Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma.

Samkvæmt kjarasamningi FGT-SÍA kemur til greiðslu orlofsuppbótar 1. júní næst
komandi. Upphæðin skal vera 19.500 kr. til þeirra sem unnið hafa fullt starf
01.05 2009-30.04 2010. Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma.

Sumar- og vetrarorlof, Samkvæmt kjarasamningi FBM-SA

Sumarleyfi
Starfsfólk skal fá 25 virka daga í sumarleyfi með fullu kaupi, enda hafi það unnið í sama fyrirtæki í eitt ár samfleytt.
Eftir 5 ár samfellt í sama fyrirtæki 28 dagar
Eftir 10 ár í iðninni 30 dagar

Starfsfólk, sem unnið hefur skemur en eitt ár í sama fyrirtæki, skal fá sumarleyfi með fullu kaupi að tiltölu við þann tíma, sem það hefur
unnið.

Sumar- og vetrarorlof, Samkvæmt kjarasamningi FBM-SA

Sumarleyfi
Orlofsréttur þeirra sem eru með 1-3 ára starfsaldur er 24 dagar
4 ára starfsaldur 26 dagar         9 ára starfsaldur 28 dagar
6 ára starfsaldur 27 dagar        12 ára starfsaldur 29 dagar

Frá 1. maí 2010 breytist orlofsávinnsla FGT félaga sem hér segir:
Eftir 5 ár í sama fyrirtæki 28 dagar
Eftir 10 ár í sama fyrirtæki 30 dagar

Starfsfólk, sem unnið hefur skemur en eitt ár í sama fyrirtæki, skal fá sumarleyfi með fullu kaupi að tiltölu við þann tíma, sem það hefur unnið.

Til baka

Póstlisti