Íslandsmót iðn- og verkgreina 2012
8 mar. 2012
Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið í Háskólanum í Reykjavík 9. – 10. mars. Mótið hefst kl. 9.30 föstudaginn 9. mars og lýkur kl. 16.00 næsta dag.
Katrín Jakobsdóttir menningar- og menntamálaráðherra setur Íslandsmótið og Menntadag iðnaðarins kl. 13:00 föstudaginn 9. mars í Sólinni í HR.
Keppnin í ár er sú stærsta til þessa og verður fjölbreytt og skemmtileg en um 170 manns etja kappi í 24 iðn- og verkgreinum, svo sem grafískri miðlun, byggingagreinum, bílgreinum, matreiðslu, framreiðslu, hársnyrtingu, pípulögnum o.fl.
Þátttakendur á Íslandsmótinu eru nemendur í iðn- og verkgreinaskólum landsins og þeir sem nýlega hafa lokið námi. Aldurstakmark þátttakenda miðast við þá sem verða 21 á árinu en gerðar eru undanþágur í nokkrum greinum.
Íslandsmótið veitir ungu fólki tækifæri til sýna fram á færni sína og kunnáttu í iðn- og verkgreinunum. Tekist er á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku. Dómarar fara yfir verkefnin að lokinni keppni, meta gæðin og velja þá sem skara fram úr í hverri grein. Skólarnir hafa þegar valið sitt besta fólk í keppnina.
Keppninni er fyrst og fremst ætlað að vekja athygli á iðn- og verkgreinum og þeim tækifærum sem felast í námi og störfum í iðngreinum – ekki síst ungu fólki á grunnskólaaldri. Grunnskólanemendum í 9. og 10. bekkjum landsins er því boðið sérstaklega og hafa um 1650 nemendur og kennarar grunnskólanna boðað komu sína.