Fréttir

Iðnaðarmannafélögin samþykktu verkfallsheimild með 75% atkvæða

1 jún. 2015

Fréttatilkynning frá iðnaðarmannafélögunum mánudaginn 1. júní  2015 vegna allsherjaratkvæðagreiðslu um verkfallsheimild

Félög iðnaðarmanna sem eru með samstarf við endurnýjun á almenna kjarasamningum  við Samtök atvinnulífsins, MATVÍS, Grafía/FBM, VM, aðildarfélög Samiðnar , Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög RSÍ viðhöfðu allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um heimild til verkfallsboðunar.

Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00.

Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44.6%.

Samþykkt var að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum sem hæfust 10. júní með tímabundnu verkfalli og ótímabundnu verkfalli 24. ágúst n.k.

Já sögðu 75,1%

Nei sögðu 22,1%

Þeir sem ekki tóku  afstöðu 2,8%

Heimild til verkfallsboðunar var því samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og náist ekki ásættanlegur árangur í viðræðum við atvinnurekendur á næstu dögum, koma framangreind verkföll til framkvæmda.

Til baka

Póstlisti