Fréttir

Hilmar Þorkelsson Meistari FBM í golfi

12 ágú. 2010

Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 7. ágúst. Þetta var í fimmtánda sinn sem við höldum golfmót í Miðdal.
Að þessu sinni voru keppendur 21.

verdlaunahafar 2010 golfm

Frá vinstri: Sigrún Sæmundsdóttir, Anton Ingi Þorsteinsson, Aðalsteinn Örnólfsson, Filipus Gunnar Árnason, Hilmar Þorkelsson, Valgerður Þórisdóttir, Bjarney S. Sigurjónsdóttir og Fjölnir Daði Georgsson.

 

Eftir kaffiveitingar var keppendum raðað á teiga og hófst mótið kl. 10.00 undir stjórn  Eiríks Þorlákssonar og Georgs Páls Skúlasonar. Allir þátttakendur fengu afhenta teiggjöf frá FBM, sem voru golfboltar merktir Félagi Bókagerðarmanna.

Aðalstuðningsaðili mótsins sem og undanfarinn ár var Hvítlist. Færum við Hvítlist bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Fyrstu verðlaun með forgjöf hlaut Filipus Gunnar Árnason með 71 högg, en í öðru sæti varð Fjölnir Daði Georgsson með 73 högg og í þriðja sæti varð Hilmar Þorkelsson með 74 högg og hlaut hann farandbikar FBM þar sem hann var efstur af félagsmönnum FBM.

Postillon  bikarinn, fyrstu verðlaun án forgjafar vann Filipus Gunnar Árnason með 83 högg, í öðru sæti varð Anton Ingi Þorsteinsson með 86 högg og í þriðja sæti varð Aðalsteinn Örnólfsson með 89 högg.

Valgerður Þórisdóttir sigraði í kvennaflokki með forgjöf á 78 höggum, í öðru sæti varð Bjarney S. Sigurjónsdóttir á 79 höggum og í þriðja sæti varð Sigrún Sæmundsdóttir á 104 höggum.

Púttmeistari varð Filipus Gunnar Árnason með 24 pútt. Lengsta teighögg karla á þriðju braut átti Anton Þorsteinsson og lengsta teighögg kvenna á þriðju braut átti Bjarney S. Sigurjónsdóttir. Næst holu á 5. braut var Filipus Gunnar Árnason.

Auk þess var dregið úr skorkortum. Í mótslok, var boðið var upp á léttar veitingar sem þátttakendur tóku hraustlega við eftir frábæran og skemmtilegan keppnisdag.

Næsta Miðdalsmót verður í ágúst 2011.

Til baka

Póstlisti