Fréttir

Framboðsfrestur til Trúnaðarráðs FBM kjörtímabilið 2010 – 2012

16 sep. 2010

fbm_barabeid

 

Framboðsfrestur við kosningar til Trúnaðarráðs FBM kjörtímabilið 2010 – 2012

 

Í samræmi við lög félagsins (sbr. 6. og 7. kafla) er hér með lýst eftir tillögum um 18 félagsmenn til setu í Trúnaðarráðinu og 6 til vara.

Tillögur um menn í Trúnaðarráð skulu studdar af mest 50 félagsmönnum og minnst 20.

Frestur til að skila tillögum um félagsmenn í Trúnaðarráðið
rennur út þriðjudaginn 12. október n.k. kl. 16.30
og skal tillögum skilað á skrifstofu félagsins, að Hverfisgötu 21 Reykjavík.

Vakin er athygli á því, að þegar fleiri en eitt framboð berast er öllum frambjóðendum raðað á kjörseðil eftir hlutkesti.

„Þeir 18 menn sem flest atkvæði fá teljast réttkjörnir aðalmenn og þeir 6 sem næstir koma í atkvæðamagni teljast rétt kjörnir varamenn.“

Reykjavík, 14. september 2010
Stjórn Félags bókagerðarmanna

 

Til baka

Póstlisti