Framboð til stjórnar FBM 2012
8 feb. 2012
Í samræmi við lög félagsins lýkur á næsta aðalfundi tveggja ára kjörtímabili þriggja aðalstjórnarmanna, Önnu S. Helgadóttur, Oddgeirs Þórs Gunnarssonar og Óskars R. Jakobssonar og þriggja varastjórnarmanna, Ásbjörns Sveinbjörnssonar, Hrefnu Stefánsdóttur og Róberts Ericssonar.
Hér með er lýst eftir uppástungum um þrjá félagsmenn til setu í aðalstjórn næstu tvö ár og á sama hátt jafnmarga til setu í vara-stjórn.
Þeir félagsmenn sem að uppástungum standa skulu stinga upp á mönnum í öll sæti sem kjósa á í, samtals sex félagsmönnum. Uppástungur skulu studdar fæst 20 en mest 50 félagsmönnum. Þeim sem að uppástungum standa skal jafnframt bent á að fá samþykki þeirra sem þeir áforma að stinga upp á.
Vakin er athygli á eftirfarandi ákvæði í lögum félagsins (gr. 7.4.), en þar segir:
,,Þegar skilafrestur á framboðum til stjórnarkjörs er liðinn, skal stjórn félagsins sameina þau þannig að nafn hvers frambjóðanda komi aðeins einu sinni fram á kjörseðli. Greinilega skal auðkenna hverjir eru í framboði til aðalstjórnar og hverjir til varastjórnar. Sá sem er í framboði til aðalstjórnar getur ekki verið í framboði til varastjórnar samtímis. Við allar kosningar í félaginu skal raða á kjörseðil með útdrætti og skal boða fulltrúa framkominna lista til að vera þar viðstadda.” Og í grein 6.1.5. stendur: ,,Varastjórn er kosin á sama hátt og aðalstjórn og samtímis.”
Framboð samkvæmt framanrituðu skulu berast skrifstofu félagsins,
Hverfisgötu 21, fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 14. febrúar n.k.
Reykjavík, 17. janúar 2012.
Stjórn Félags bókagerðarmanna