Fréttir

FERÐASTYRKIR Á DRUPA 2016

28 des. 2015

Prent- og miðlunarsvið IÐUNNAR og fræðslusjóður Grafíu auglýsir eftir umsóknum vegna styrkja á Drupa 2016

 

Um er að ræða 15 ferðastyrki á Drupa 2016, sem fer fram dagana 30.05 – 10.06 í Dusseldorf í Þýskalandi.

 

Þeir sem eiga fulla félagsaðild að Grafíu og Prenttæknisjóði geta sótt um.

 

Ef fjöldi umsókna er fleiri en 15 verður dregið úr umsóknum.

 

Hver styrkur nemur 100.000 krónum. Styrkurinn verður greiddur út eftir að sýningu lýkur og félagsmaður hefur framvísað staðfestum aðgöngumiða.

 

Þeir félagar sem að fengu styrk til að fara á Drupa sýninguna árið 2012 og IPEX sýninguna árið 2014 verða ekki í forgangi. Styrkurinn er hugsaður til handa félögum sem alla jafna eiga ekki kost á að fara á viðburði erlendis.

 

Umsóknum skal skilað inn á umsóknareyðublaði fræðslusjóðs Grafíu og Prenttæknisjóðs, hægt er að nálgast það á www.grafia.is undir námsstyrkir eða fræðslustyrkir.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2016.
Tilkynnt verður þann 21. janúar hverjir hljóta styrki.

 

Allar nánari upplýsingar veita Ingi Rafn sviðsstjóri prent- og miðlunarsviðs IÐUNNAR, sími 590 6400, ingirafn(hja)idan.is og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu, sími 552 8755, georg(hja)fbm.is

Til baka

Póstlisti