Fréttir

FBM mótmælir hækkun virðisaukaskatts á bækur

17 sep. 2014

Félag bókagerðarmanna mótmælir harðlega hækkun virðisaukaskatts á bækur úr 7% í 12%.

Bókaútgáfa er undirstaða þess að íslensk tunga þróist og dafni og því þarf að standa vörð um útgáfu og dreifingu bóka á íslensku. Hækkun útsöluverðs bóka eykur námskostnað framhaldsskólanema og slælegar niðurstöður grunnskólabarna í alþjóðlegum lestrarkönnunum hræða. Hækkun útsöluverðs bóka verður auk þess trauðla til þess að fjölga þeim sem lesa sér til gagns eða auka málkennd.

Hækkun virðisauka á bækur veikir markaðsstöðu bókarinnar og dregur væntanlega úr sölu hennar og í kjölfarið kann bókatitlum sem gefnir verða út á Íslandi að fækka. Það væri afleit þróun fyrir íslenska tungu og menningu að ógleymdri lífsafkomu allra þeirra fjölmörgu sem koma að skrifum, framleiðslu, dreifingu og sölu bóka á Íslandi. Nær væri að stjórnmálamenn sýndu íslenskri menningu og tungu stuðning í verki og afnæmu virðisaukaskatt á bókum á öllum vinnslustigum og styrku þannig greinina alla. Þá stæðum við keik á tyllidögum og værum raunveruleg bókaþjóð.

Stjórn Félags bókagerðarmanna, 16. september 2014.

Til baka

Póstlisti